Forsíða EVR

Viðskiptaráðherra bregst við fyrirspurn Umboðsmanns Alþingis

29.2.2008

Umboðsmaður Alþingis ritaði viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra bréf þann 22. febrúar síðastliðinn, þar sem hann óskaði eftir upplýsingum um hvort og í hvaða mæli það tíðkast að opinberar stofnanir og fyrirtæki innheimti seðilgjöld, og í hvaða tilvikum sé fullnægjandi lagaheimildir fyrir slíkri gjaldtöku.

Af því tilefni hefur viðskiptaráðherra þegar, með bréfi dagsettu 26. febrúar, óskað eftir að Neytendastofa framkvæmi úttekt á ofanrituðu og að niðurstöður verði kynntar fyrir 1. apríl næstkomandi.

 

Reykjavík 29. febrúar 2008.

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica