Fyrstu viðbrögð efnahags- og viðskiptaráðuneytis við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis
Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, sem gefin var út í dag, er fjallað um ýmis atriði er varða starfsemi viðskiptaráðuneytisins, nú efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Úr skýrslunni má meðal annars lesa gagnrýni á framkvæmd laga og eftirlits með fjármálamarkaði. Í skýrslunni er einnig að finna ítarlega umfjöllun um starfsaðferðir Stjórnarráðsins í aðdraganda bankahrunsins, auk Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans en þessar stofnanir heyra nú báðar undir efnahags- og viðskiptaráðuneytið.
Skýrslu Rannsóknarnefndar hefur nú verið vísað til frekari meðferðar á Alþingi. Vegna þeirra mikilvægu upplýsinga og ábendinga sem fram koma í skýrslunni mun ráðuneytið hinsvegar einnig taka hana til ítarlegrar umfjöllunar og meta til hvaða aðgerða verður gripið af hálfu þess. Ljóst er að skýrslan er yfirgripsmikil og fjölmörg atriði sem fram koma krefjast ítarlegrar umfjöllunar og úrvinnslu. Ráðuneytið mun hinsvegar leitast við að hraða þeirri vinnu og greina nánar frá viðbrögðum og afstöðu þess á næstu dögum og vikum.
Mikilvægt er að benda á að þegar hefur verið gripið til viðamikilla aðgerða af hálfu ráðuneytisins í ljósi atburðanna haustið 2008. Ráðuneytið hefur gert greinargerð um þessar aðgerðir sem aðgengileg er á vef ráðuneytisins. Þar kemur m.a. fram að efnahags- og viðskiptaráðherra hefur á undanförnum vikum og mánuðum lagt fram á Alþingi frumvörp til laga um breytingar á ýmsum lögum sem falla undir ráðuneytið, þ. m. t. lögum um fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóði, innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta, hlutafélög og einkahlutafélög. Þá er unnið að fleiri frumvörpum á þessu sviði, sem munu m. a. fjalla um endurskoðun á lögum um Seðlabanka Íslands.
Greinargerðina er að finna hér:
Helstu aðgerðir og viðbrögð efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og stofnana þess í kjölfar bankahrunsins
