ForsíðaSTJR-Fréttir
Viðskiptaráðherra fundar í dag með Alistair Darling, fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands
Í dag þriðjudaginn 2. september fundar Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, með Alistair Darling, fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands. Munu ráðherrarnir m.a. funda um stöðuna á fjármálamörkuðum og framtíðarhorfur í fjármálastarfsemi. Fyrr um daginn heimsækir viðskiptaráðherra starfstöðvar íslensku bankanna í London og kynnir sér starfsemi þeirra.
