Fréttatilkynningar

Nýtt fréttabréf. - 1.12.2004

Út er komið nýtt fréttabréf iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta. Meðal efnis: Aðild Íslands að evrópska einkaleyfasamningnum, heimsfrægir leikarar við kvikmyndagerð á Íslandi, iðnaðar- og viðskiptaráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Rúmeníu og Búlgaríu, alþjóðlegur fundur IPHE á Íslandi. Lesa meira
 

Fleiri konur í framkvæmdastjórn íslenskra fyrirtækja en á Norðurlöndunum en færri í stjórnum. - 1.12.2004

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, var þátttakandi á fréttamannafundi í Osló í dag í tilefni af útgáfu skýrslu um hlut kvenna í stjórnum og framkvæmdastjórn 500 stærstu fyrirtækja á Norðurlöndum. Lesa meira
 

Evrópuverkefnið Konur í atvinnurekstri og landbúnaði - 26.10.2004

Umræðufundur á Radisson hótel Sögu 29. október n.k. Lesa meira
 

Frumvörp til breytinga á skipulagi samkeppnisyfirvalda og neytendamála. - 1.10.2004

Með hliðsjón af niðurstöðu nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi hefur viðskiptaráðuneytið unnið drög að frumvörpum til breytinga á skipulagi samkeppnisyfirvalda og neytendamála. Lesa meira
 

Alþjóðlegur fundur IPHE á sviði vetnis á Íslandi. - 22.9.2004

Dagana 23. og 24. september verður haldinn í Reykjavík fundur framkvæmdanefndar IPHE, International Partnership for the Hydrogen Economy, sem er samstarf 15 þjóða sem stofnað var til að frumkvæði Bandaríkjanna í nóvember 2003. Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, mun ávarpa og setja fundinn í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 23. september kl. 9:00. Fjölmiðlum er boðið að vera viðstaddir setninguna. Búist er við að um 80 manns frá 20 þjóðlöndum sæki fundinn. Lesa meira
 

Frumvörp um hlutafélög og einkahlutafélög. - 21.9.2004

Í kjölfar útgáfu skýrslu nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi hefur viðskiptaráðuneytið unnið drög að frumvörpum um breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög. Lesa meira
 

Þrír norrænir ráðherrafundir á Akureyri. - 1.9.2004

Norrænir ráðherrar sem fara með atvinnu-, orku- og neytendamál funda á Hótel KEA á Akureyri dagana 2.-3. september. Lesa meira
 

Álit nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi. - 31.8.2004

Nefnd um íslenskt viðskiptaumhverfi sem viðskiptaráðherra skipaði í janúar s.l. hefur lokið störfum. Nefndinni var m.a. ætlað að taka fyrir hvernig bregðast mætti við aukinni samþjöppun í íslensku viðskiptalífi og með hvaða hætti þróa ætti reglur þannig að viðskiptalífið væri skilvirkt og nyti trausts. Lesa meira
 

Norrænt málþing um neyslustaðla og lífsstíl unga fólksins. - 27.8.2004

Ísland er í formennsku fyrir norrænt samstarf í ráðherra- og embættismannanefndum árið 2004. Því tengt hefur verið skipulagt málþing um neyslustaðla og lífsstíl unga fólksins á Grand Hótel dagana 30.-31. ágúst. Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir. Lesa meira
 

Samkomulag um verðmæti flutningsvirkja sem mynda Landsnet hf. - 10.8.2004

Nýtt hlutafélag, Landsnet, skal frá og með 1. janúar n.k. annast flutning raforku og kerfisstjórnun samkvæmt nýjum raforkulögum. Lesa meira
 

Skipun stjórnar Vaxtarsamnings Eyjafjarðarsvæðisins. - 16.7.2004

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skipað stjórn Vaxtarsamnings Eyjafjarðarsvæðisins að fengnum tillögum frá aðilum samningsins. Lesa meira
 

Gerð vaxtarsamnings Eyjafjarðarsvæðisins. - 5.7.2004

Fyrir nokkru var kynnt skýrsla nefndar um byggðaþróun Eyjafjarðarsvæðisins, en starf nefndarinnar er hluti af verkefnum innan byggðaáætlunar stjórnvalda sem nær yfir tímabilið 2002-2005. Lesa meira
 

Ný lög. - 23.6.2004

Eftirtalin lög hafa verið samþykkt á Alþingi og birt í A-deild Stjórnartíðinda: Lög nr. 68 7. júní 2004, um breytingu á lögum nr. 134 22. desember 1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, með síðari breytingum; lög nr. 72 7. júní 2004 um uppfinningar starfsmanna og lög nr. 75 7. júní 2004 um stofnun Landsnets hf. Lesa meira
 

Ný lög. - 16.6.2004

Eftirtalin lög voru samþykkt á Alþingi 28. maí s.l.: Lög um breytingu á lögum um einkaleyfi, lög um breytingu á lögum um hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, lög um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar og lög um afnám laga um jöfnun flutningskostnaðar á sementi. Lesa meira
 

Ráðstefna um framkvæmd formennskuáætlunar Íslands í samstarfi Norðurlandanna. - 9.6.2004

Haldin á Grand Hótel, fimmtudaginn 10. júní kl. 09:00-16:30. Lesa meira
 

Alþjóðleg ráðstefna í Bonn um endurnýjanlegar orkulindir. - 3.6.2004

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra var fulltrúi íslensku ríkisstjórnarinnar á fundinum. Lesa meira
 

Ábyrgðarmönnum fækkar. - 1.6.2004

Nefnd sem viðskiptaráðherra skipaði til að undirbúa stefnumótun vegna áforma um setningu laga og reglna um réttindi og skyldur í viðskiptum neytenda við fjármálafyrirtæki leggur til að samkomulag um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga verði útvíkkað og nái til fleiri þátta lánveitinga en núgildandi samkomulag. Lesa meira
 

Skýrsla nefndar um réttindi og skyldur í viðskiptum neytenda við fjármálafyrirtæki og Viðhorfsrannsókn til bankaþjónustu. - 1.6.2004

Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að unnið verði að setningu laga og reglna um réttindi og skyldur í viðskiptum neytenda við fjármálafyrirtæki í samræmi við tillögur nefndar sem falið var að undirbúa stefnumótun á þessu sviði. Nefndin lét einnig gera könnun á viðhorfi almennings til bankaþjónustu. Lesa meira
 

Ný lög. - 27.5.2004

Lög nr. 30/2004 um vátryggingasamninga hafa verið samþykkt á Alþingi. Lögin taka gildi 1. janúar 2006. Lesa meira
 
Útrás íslenskrar tónlistar - Forsíða skýrslu

Útrás íslenskrar tónlistar - 27.5.2004

Samantekt á styrkjum til íslenskra tónlistarmanna 1999-2003. Lesa meira
 

Meginstefnumið iðnaðar- og viðskiptaráðherra. - 21.5.2004

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur sett ráðuneytunum markmið í starfsemi þeirra á tímabilinu 2004-2007. Lesa meira
 

Ný lög. - 17.5.2004

Samþykkt hafa verið á Alþingi þrenn ný lög, sem heyra undir iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti; Lög um breytingu á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, lög um breytingu á lögum nr. 17/1991, um einkaleyfi og lög um Evrópufélög. Lesa meira
 

Alþjóðlegt samstarf á sviði byggðamála. - 30.4.2004

Þrjú ný verkefni innan Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP) með íslenskri þátttöku. Ísland er þátttakandi í 14 verkefnum alls. Lesa meira
 

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra með íslenskum fyrirtækjum í Kína - 13.4.2004

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fer fyrir 40 manna viðskiptasendinefnd í Kína en heimsókn hennar hófst þar í dag. Lesa meira
 

Skýrsla verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar - 7.4.2004

Í niðurstöðum skýrslu Verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar, er lagt til að gerður verði svokallaður vaxtarsamningur frá 2004 til 2007 sem byggist á nýjum aðferðum við að styrkja hagvöxt einstakra svæða. Einnig er að finna m.a. 20 forgangstillögur. Lesa meira
 
Vaxtarsamningur Eyjafjarðarsvæðis

Byggðaáætlun Eyjafjarðar. - 7.4.2004

Út er komin skýrsla Verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar. Lesa meira
 

Kynningarfundur um skýrslu Verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar. - 6.4.2004

Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri, miðvikudaginn 7. apríl kl. 15:00-17:00 Lesa meira
 

Viðskiptaráðherra hefur gefið Alþingi skýrslu um stjórnunarhætti fyrirtækja. - 2.4.2004

Í skýrslunni er m.a. úttekt sem Lex lögmannsstofa gerði fyrir viðskiptaráðuneytið. Þá eru í skýrslunni leiðbeiningar sem Verslunarráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands hafa sett um hlutverk og störf stjórnarmanna og stjórnenda fyrirtækja og reglur OECD um stjórnunarhætti fyrirtækja. Lesa meira
 

Opnun hönnunarsýningar í París. - 1.4.2004

Í dag opnar Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, íslenska hönnunarsýningu í París. Sýningin er haldin að frumkvæði hennar og kostuð að stærstum hluta af iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti með stuðningi Reykjavíkurborgar og Útflutningsráðs Íslands. Lesa meira
 
Jónína s. Lárusdóttir

Nýr skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. - 25.3.2004

Jónína S. Lárusdóttir hefur verið skipuð skrifstofustjóri almennrar skrifstofu í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. Lesa meira
 

Hönnunarsýning í París. - 10.3.2004

Þann 1. apríl verður opnuð í París íslenska hönnunarsýningin Transforme. Um er að ræða eina umfangsmestu sýningu sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í. Íslenska hönnunarsýningin er haldin að frumkvæði iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, og kostuð að stærstum hluta af iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti með stuðningi Reykjavíkurborgar og Útflutningsráðs Íslands. Lesa meira
 

Samstarfsvettvangur um hönnun. - 10.3.2004

Stofnað hefur verið til samstarfsvettvangs um hönnun, sem ætlað er að efla íslenska hönnun og koma íslenskum hönnuðum á framfæri. Lesa meira
 

Líftækninet í auðlindanýtingu. - 5.3.2004

Út er komin skýrslan Líftækninet í auðlindanýtingu sem unnin er samkvæmt samkomulagi frá 6. maí 2003 þar sem ráðuneyti iðnaðar- menntamála og sjávarútvegs vildu láta kanna möguleika á uppbyggingu öndvegisseturs í auðlindalíftækni á Akureyri. Lesa meira
 

Skipun eigendanefndar Landsvirkjunar. - 27.1.2004

Nefndin skal skoða fjárhagsstöðu og fjármögnun Landsvirkjunar, stöðu fyrirtækisins í breyttu umhverfi raforkumála og gera tillögur um breytingar á sameignarsamningi um fyrirtækið, m.a. um arðsemismarkmið með hliðsjón af nýjum raforkulögum. Lesa meira
 

Skipun nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi - 27.1.2004

Viðskiptaráðherra hefur í dag skipað nefnd um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis. Nefndin skal m.a. taka fyrir hvernig bregðast megi við aukinni samþjöppun og með hvaða hætti skuli þróa reglur þannig að viðskiptalífið sé skilvirkt og njóti trausts. Lesa meira
 

Sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti - 14.1.2004

Í iðnaðarráðuneyti er laust til umsóknar starf deildarsérfræðings á sviði orku-og umhverfismála. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica