Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í dag, 12. nóvember 2007, mun Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, mæla fyrir frumvarpi til laga um sértryggð skuldabréf á Alþingi.
Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem hafi það verkefni að gera úttekt á lagaumhverfi að því er varðar viðskipti neytenda og banka í ljósi nútímaviðskiptahátta, einkum með tilliti til gjaldtöku fjármálafyrirtækja fyrir þjónustu í starfsemi sinni og rafrænna greiðslukerfa, s. s. vegna debet- og kreditkortafærslna.
Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að fela Neytendastofu að vinna framkvæmdaáætlun um rafrænar verðkannanir. Vinnu við áætlunina skal lokið fyrir 1. júní 2008.
Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, hefur í dag skipað Jónínu S. Lárusdóttur, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu frá 1. ágúst 2007.
Jón Þór Sturluson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra og tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi.
Iðnaðarráðherra mun á morgun mæla fyrir á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
Lesa meira
Lesa meira
Viðskiptaráðherra hefur gert samkomulag við Alþýðusamband Íslands, Neytendasamtökin og Neytendastofu um eftirfylgni með aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar á matvælaverði.
Viðskiptaráðherra hefur skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins til næstu fjögurra ára. Tók skipunin gildi frá og með 1. janúar s.l.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra ritaði í dag undir Vaxtarsamning Austurlands á Hótel Héraði Egilsstöðum að viðstöddu fjölmenni.
Um er að ræða fimmta vaxtarsamninginn sem iðnaðarráðherra undirritar.