Fréttatilkynningar

Viðskiptaráðuneytið styrkir Mæðrastyrksnefnd í stað þess að senda út jólakort - 19.12.2008

Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að senda ekki út jólakort í ár í nafni ráðuneytisins, en styrkja þess í stað í stað Mæðrastyrksnefnd fyrir andvirði þess kostnaðar sem ella hefði farið í jólakort, eða kr. 200.000,-. Lesa meira
 

Endurskoðun laga á sviði fjármálamarkaðar - 16.12.2008

Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir tilnefningum í nefnd sem hann hyggst skipa til að fara yfir lög á sviði fjármálamarkaðar í ljósi þeirrar reynslu sem unnt er að draga af fjármálaáfallinu. Lesa meira
 

Vegna aðgangs að rannsóknargögnum - 10.12.2008

Fréttatilkynning frá viðskiptaráðuneyti vegna erindis til yfirvalda í Luxemborg, er varðar aðgengi íslenskra eftirlits- og rannsóknaryfirvalda að gögnum í útibúum íslensku bankanna

Lesa meira

 

Breytingar á lögum um gjaldeyrismál - 28.11.2008

Alþingi hefur í dag samþykkt breytingar á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992 sem byggja á viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 3. nóvember s.l.

Lesa meira

 

Viðskiptaráðherra sækir ráðherrafund EFTA f.h. utanríkisráðherra - 24.11.2008

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sækir ráðherrafund EFTA í Genf í dag og á morgun f. h. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra.

Lesa meira
 

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, hélt ræðu um hnattvæðingaáherslur Norrænu ráðherranefndarinnar á þingi Norðurlandaráðs nú í dag. - 29.10.2008

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem jafnframt er samstarfsráðherra Norðurlandana, mælti fyrir skýrslu um Norrænt samstarf á sviði hnattvæðingar. Lesa meira
 

Frysting erlendra lána - 22.10.2008

Í ljósi frétta af frystingu erlendra lána vill ríkisstjórnin taka fram eftirfarandi:
Viðskiptaráðuneytið hefur í dag rætt við alla bankastjóra hinna nýju ríkisbanka til að tryggja að þjónusta við viðskiptavini bankanna sé í samræmi við tilmæli ríkisstjórnarinnar um frystingu myntkörfulána.

Lesa meira
 

Tilmæli frá ríkisstjórn Íslands. - 15.10.2008

Í ljósi efnahagsástandsins hefur ríkisstjórn Íslands ákveðið að beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins, f. h. skilanefndar Glitnis hf. og Kaupþings hf., og til stjórna Nýja Landsbankans hf. og Nýja Glitnis hf., að frystar verði afborganir skuldara á myntkörfulánum, sérstaklega vegna húsnæðislána, þar til ró kemst á gjaldeyrismarkaðinn. Lesa meira
 

Þóra Margrét Hjaltested formaður bráðabirgðastjórnar Nýja Glitins. - 12.10.2008

Þóra Margrét Hjaltested verður formaður bráðabirgðastjórnar Nýja Glitnis, en ekki Jón Þór Sturluson, einsog áður hafði verið greint frá. Lesa meira
 

Ný lög um heimildir til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., nr. 125/2008. - 9.10.2008

Hinn 6. október sl. voru samþykkt á Alþingi lög nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. Lesa meira
 

Upplýsingar vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði - 9.10.2008

Ráðuneytið vill vekja athygli á því að félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem felur í sér nýtt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall.

Lesa meira
 

Algengar spurningar og svör vegna Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta - 2.10.2008

Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta hefur birt lista yfir algengnar spurningar og svör yfir innistæðutryggingar og tryggingar fjárfesta. Lesa meira
 

Evra á Íslandi, ráðstefnugögn. - 24.9.2008

Viðskiptaráðuneytið, ásamt Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifraust, stóð fyrir ráðstefnu um evru á Íslandi, s.l. þriðjudag. Hérna má nálgast þau gögn er lögð voru fram á ráðstefnunni ásamt ræðu ráðherra. Lesa meira
 

Evra á Íslandi. Hvort, hvernig, hvenær? - 22.9.2008

Þriðjudaginn 23. september stendur viðskiptaráðuneytið, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst fyrir ráðstefnu um áhrif tengingar við evru á viðskipti, fjármálastöðugleika, samfélag og lagalegt umhverfi. Lesa meira
 

Auknar heimildir vegna skortsölu - 22.9.2008

Viðskiptaráðuneyti hefur gert breytingar á reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Lesa meira
 

Nefnd til að kanna stöðu fjármálalæsis á Íslandi - 12.9.2008

Viðskiptaráðherra hefur skipað í nefnd til þess að kanna stöðu fjármálalæsis á Íslandi, meta þörf á aðgerðum til að bæta þekkingu almennings á vörum og þjónustu fjármálafyrirtækja og gera tillögur um aðgerðir. Lesa meira
 

Ný sókn í neytendamálum - 8.9.2008

Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, leggur upp í fundarherferð um neytendamál sem hefst á morgun, 9. september á Selfossi. Verið er að fylgja eftir stefnu í neytendamálum innan viðskiptaráðuneytisins. Lesa meira
 
Viðskiptaráðherra og Alistair Darling

Viðskiptaráðherra fundaði í gær með fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands, Alistair Darling. - 3.9.2008

Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, átti í gær fund með fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands, Alistair Darling. Á fundinum ræddu þeir góð samskipti þjóðanna á sviði fjármálamarkaðar. Lesa meira
 

Viðskiptaráðherra fundar í dag með Alistair Darling, fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands - 2.9.2008

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra fundar í dag með Alistair Darling, fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands. Lesa meira
 

Kallað eftir upplýsingum um þróun verðlags olíuvara - 28.8.2008

Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir upplýsingum um þróun verðlags á olíumarkaði frá Samkeppniseftirlitinu og Neytendastofu. Lesa meira
 
Heimsokn_fra_Tibet

Viðskiptaráherra fundar með erindreka Tíbeta. - 27.8.2008

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra fundaði í dag með Tashi erindreka Tíbesku útlagastjórnarinnar og ræddu þeir m.a. stöðu mála í Tíbet og fyrirhugaða komu Dalai Lama til Íslands á næsta ári. Lesa meira
 

Viðskiptaráðherra fundaði með sænska samstarfsráðherra Norðurlandanna, Cristinu Husmark Pehrsson, fimmtudaginn 24. júlí sl. - 25.7.2008

Ræddu þau meðal annars málefni Norðurlandaráðs og framtíð norræns samstarfs.

Lesa meira

 

Fréttatilkynning nr 20/2008 Framkvæmdastjóri samkeppnismála hjá Evrópusambandinu á Íslandi - 2.7.2008

Í tilefni af heimsókn Neelie Kroes framkvæmdastjóra samkeppnismála hjá Evrópusambandinu til Íslands síðar í þessari viku standa viðskiptaráðuneytið og Samkeppniseftirlitið fyrir ráðstefnu um bótarétt vegna samkeppnislagabrota. Lesa meira
 
Vidskiptaraduneyti-3

Ráðstefna um bótarétt vegna samkeppnislagabrota - 2.7.2008

Í tilefni af heimsókn Neelie Kroes framkvæmdastjóra samkeppnismála hjá Evrópusambandinu til Íslands standa viðskiptaráðuneytið og Samkeppniseftirlitið fyrir ráðstefnu um bótarétt vegna samkeppnislagabrota þann 4. júlí n.k.

Lesa meira
 

Ráðstefna um bótarétt vegna samkeppnislagabrota - 2.7.2008

Í tilefni af heimsókn Neelie Kroes framkvæmdastjóra samkeppnismála hjá Evrópusambandinu til Íslands standa viðskiptaráðuneytið og Samkeppniseftirlitið fyrir ráðstefnu um bótarétt vegna samkeppnislagabrota þann 4. júlí n.k.

Lesa meira
 

Breyting á lögum um rafræna eignaskráningu verðbréfa. - 18.6.2008

Með lögum nr. 64/2008 hefur verið gerð breyting á lögum um rafræna eignaskráningu verðbréfa. Lesa meira
 

Viðskiptaráðherra Gíneu-Bissá heimsækir Ísland - 27.5.2008

Í dag hefst fimm daga heimsókn Hr. Herry Mané, ráðherra viðskipta, ferðamála og handverks í Gíneu-Bissá til Íslands. Mané dvelur hér á landi dagana 27.-31. maí en viðskiptaráðherra Íslands, Björgvin G. Sigurðsson, sótti Gíneu-Bissá heim í mars sl. og er Mané að endurgjalda heimsókn þess fyrrnefnda.

Lesa meira
 

Ný sókn í neytendamálum - 9.5.2008

Viðskiptaráðuneytið býður öllu áhugafólki um neytendamál til ráðstefnu um stöðu neytendamála á Íslandi og stefnumótun til framtíðar, á Grand Hótel Reykjavík, 14. maí n.k. kl. 08.10 - 11.10. Kynntar verða nýjar skýrslur stofnanna Háskóla Íslands um efnið.

Lesa meira

 

Viðskiptaráðherra fundar með aðilum vinnumarkaðarins - 8.4.2008

Fyrr í dag fundaði viðskiptaráðherra með fulltrúum frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og Samtökum Atvinnulífsins (SA). Lesa meira
 

Viðskiptaráðherra bregst við fyrirspurn Umboðsmanns Alþingis - 29.2.2008

Viðskiptaráðuneyti Fréttatilkynning Nr. 9/2008

Lesa meira
 

Uppgjör verðbréfaviðskipta í erlendri mynt - 29.2.2008

Viðskiptaráðuneyti Fréttatilkynning Nr. 8/2008 Lesa meira
 

Tilmæli viðskiptaráðherra til fjármálafyrirtækja um seðilgjöld - 19.2.2008

Viðskiptaráðherra skipaði starfshóp 29. ágúst 2007 til að gera úttekt á lagaumhverfi að því er varðar viðskipti neytenda og banka í ljósi nútímaviðskiptahátta, einkum með tilliti til gjaldtöku fjármálafyrirtækja og rafrænna greiðslukerfa og var skýrsla starfshópsins kynnt í byrjun janúar sl.

Lesa meira

 

Viðskiptaráðuneytið flytur - 18.2.2008

Í dag flytur viðskiptaráðuneytið starfsemi sína að Sölvhólsgötu 7 í Reykjavík, 4. hæð.

Lesa meira
 

Ásta Valdimarsdóttir kosin í fimm manna stjórn Evrópsku einkaleyfastofunnar og í stjórn Evrópsku einkaleyfaakademíunnar. - 6.2.2008

Ísland gerðist aðili að Evrópska einkaleyfasamningnum 1. nóvember 2004. Ásta Valdimarsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar, hefur verið fulltrúi Íslands í framkvæmdaráði Evrópsku einkaleyfastofunnar frá þeim tíma. Lesa meira
 

Viðskiptaráðuneytið styður Jafnréttiskennitöluna. - 1.2.2008

Jafnréttiskennitalan er verkefni sem unnið er á vettvangi Rannsóknaseturs vinnuréttar- og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst og miðar að árlegri birtingu upplýsinga, einkum um hlutfall kvenna í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda í fyrirtækjum hér á landi.

Lesa meira
 
Viðskiptaráðherra og Neele Kroes framkvæmdastjóri samkeppnismála

Viðskiptaráðherra heimsækir Brussel og Luxemburg - 23.1.2008

Í dag lýkur heimsókn Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, til Brussel og Lúxemburg. Lesa meira
 

Rannsóknir á áhrifum tengingar við evru á viðskipti, fjármálastöðugleika, samfélag og lagalegt umhverfi - 19.1.2008

Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja Rannsóknastofnun í Fjármálum við Háskólann í Reykjavík, Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst og Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst til rannsókna á áhrifum aukinnar notkunar erlendra mynta á vörumarkað, fjármálamarkað og samfélag á Íslandi almennt. Lesa meira
 

Viðbrögð viðskiptaráðherra við skýrslu starfshóps um heimildir fjármálafyrirtækja til gjaldtöku o. fl. - 7.1.2008

Starfshópur sem viðskiptaráðherra skipaði 29. ágúst sl. til að gera úttekt á lagaumhverfi að því er varðar viðskipti neytenda og banka í ljósi nútímaviðskiptahátta, einkum með tilliti til gjaldtöku fjármálafyrirtækja og rafrænna greiðslukerfa, hefur skilað skýrslu. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica