Fréttatilkynningar

Gengislánalögin komin í gildi - 28.12.2010

Lánastofnanir hafa nú 60 daga frest til útreikninga á ólögmætum gengisbundnum bíla- og fasteignveðlánum. Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um gengisbundin lán var samþykkt á Alþingi laugardaginn 18. desember og varð í dag að lögum. Lesa meira
 

Breytingar á verklagsreglum um sértæka skuldaaðlögun - 23.12.2010

Sértæk skuldaaðlögun er ætluð heimilum í alvarlegum skuldavanda og tilgangur hennar er að þau geti fengið skilvirka og varanlega lausn, þar sem skuldir og eignir eru lagaðar að greiðslugetu. Úrræðið byggir á lögum nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja.  Í framhaldi af setningu laganna í lok október 2009 gerðu Samtök fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóður og Landssamtök lífeyrissjóða með sér samkomulag um verklagsregur um sértæka skuldaaðlögun.
Lesa meira
 

ESA staðfestir gildi neyðarlaganna - 16.12.2010

Bráðabirgðaniðurstaða ESA um gildi neyðarlaganna hefur verið staðfest, fallist var á sjónarmið Íslands í máli lánardrottna íslensku bankanna. Forgangur sem innstæðum var veittur fær staðist og höfðu íslensk stjórnvöld rétt til að verja bankakerfið og almannaöryggi.

Lesa meira
 

Fyrirtækin á beinu brautina - 15.12.2010

Samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja Lesa meira
 

Víðtækar aðgerðir vegna skulda- og greiðsluvanda heimilanna - 3.12.2010

Ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi við lánastofnanir og lífeyrissjóði um víðtækar aðgerðir vegna skulda- og greiðsluvanda heimilanna. Aðgerðirnar byggja á umfangsmiklu samráði við hagsmunaaðila og sameiginlegri greiningu þeirra á umfangi vandans og mögulegum úrræðum til lausnar. Lesa meira
 

Framkvæmdastjórn ESB segir skuldir fyrirtækja hægja á endurreisn - 29.11.2010

Skuldir einkageirans eru ein helsta fyrirstaða efnahagsbata á Íslandi, samkvæmt haustspá framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem gefin var út í dag.

Lesa meira
 

Nefnd um erlenda fjárfestingu skilar áliti um kaup í Stormi Seafood ehf. - 23.11.2010

Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað ráðherra áliti vegna kaupa Nautilus Fisheries Ltd. á 43,75% hlut í Stormi Seafood ehf. sem nefndin hefur haft til umfjöllunar.

Lesa meira
 
Helga Jónsdóttir

Nýr ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu - 18.11.2010

Helga Jónsdóttir lögfræðingur hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu frá 1. desember 2010 að telja.

Lesa meira
 

Forsendur verðtryggingar kannaðar - 16.11.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað nefnd sem mun kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi.

Lesa meira
 

Sendinefnd AGS lýkur heimsókn vegna fjórðu endurskoðunar efnahagsáætlunar - 15.11.2010

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) lauk í gær tæplega tveggja vikna heimsókn sinni til Íslands. Heimsóknin var liður í fjórðu endurskoðun sjóðsins á framkvæmd efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS.

Lesa meira
 

Ráðherra boðar lög um smálánafyrirtæki - 15.11.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur látið semja frumvarp til laga um starfsemi smálánafyrirtækja. 

Lesa meira
 
Hagsýn vefrit efnahags- og viðskiptaráðuneytisins

Hagsýn – nýtt vefrit efnahags- og viðskiptaráðuneytisins - 9.11.2010

Hagsýn, nýtt vefrit efnahags- og viðskiptaráðuneytisins kemur út í fyrsta sinn í dag.

Lesa meira
 

Gengislánafrumvarp lagt fram í ríkisstjórn - 22.10.2010

Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um gengisbundin lán var lagt fram í ríkisstjórn í dag. Markmið frumvarpsins er að tryggja öllum einstaklingum sem tóku gengisbundin fasteignaveðlán eða bílalán lægri eftirstöðvar, til samræmis við dóm Hæstaréttar frá 16. september sl. Rúmlega 37 þúsund heimili eru með slík lán, en það eru þriðjungur heimila í landinu. Skuldir heimilanna lækka um 40-50 milljarða króna við þessa aðgerð, að meðaltali um nærri eina og hálfa milljón á heimili með gengisbundið lán.

Lesa meira
 

Endurútreikningur lækkar lán og tryggir öllum ávinning af gengislánadómi - 20.10.2010

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið áætlar að fjármálafyrirtæki hafi nú þegar endurreiknað gengisbundna lánasamninga 25 til 30 þúsund einstaklinga. Lesa meira
 

Nefnd um erlenda fjárfestingu skilar áliti um tengd félög HS orku hf. - 15.10.2010

Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað áliti til efnahags- og viðskiptaráðherra um tilkynningu HS Orku hf. á fjárfestingu Magma Energy Sweden AB á öllum dóttur- og hlutdeildarfélögum HS Orku hf.

Lesa meira
 

Eftirlitsnefnd um sértæka skuldaaðlögun skilar skýrslu - 5.10.2010

Skýrsla eftirlitsnefndar um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins var kynnt í ríkisstjórn og fyrir formönnum stjórnarandstöðuflokka í dag. Lesa meira
 

Þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands samþykkt í stjórn AGS - 29.9.2010

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins á fundi sínum í Washington í dag, 29. september.

Lesa meira
 

Umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytis - 28.9.2010

Umsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytisins rann út á miðnætti s.l. Lesa meira
 
Borghildur Erlingsdóttir

Nýr forstjóri Einkaleyfastofu - 24.9.2010

Borghildur Erlingsdóttir hefur verið sett í embætti forstjóra Einkaleyfastofu til tveggja ára.

Lesa meira
 

Sanngirni tryggð með lagasetningu - 16.9.2010

Hæstiréttur hefur í dag dæmt í máli nr. 471/2010 að reikna beri vexti ólögmæts gengisbundins láns vegna bílakaupa í samræmi við vexti sem Seðlabanki  Íslands auglýsir. Ríkisstjórnin er einbeitt í því að tryggja sanngirni, greiða úr málum og bæta stöðu skuldara.

Lesa meira
 

Samkomulag um þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands - 15.9.2010

Samkomulag hefur náðst um að þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands verði tekin fyrir í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 29. september næstkomandi.

Lesa meira
 
Kristrún Heimisdóttir, aðstoðamaður ráðherra

Kristrún Heimisdóttir hefur verið ráðin aðstoðarkona efnahags- og viðskiptaráðherra - 8.9.2010

Kristrún er lögfræðingur að mennt og hefur starfað sem slíkur hjá LEX lögmannsstofu, Samtökum iðnaðarins, félags- og tryggingamálaráðuneytinu og umboðsmanni
Alþingis.

Lesa meira
 

Embætti forstjóra Einkaleyfastofu - 7.9.2010

Vegna tímabundins leyfis forstjóra Einkaleyfastofu var embættið auglýst laust til umsóknar með setningartíma frá 1. október 2010 til tveggja ára. Umsóknarfrestur rann út 30. ágúst sl. og bárust sjö umsóknir um starfið. 

Lesa meira
 

Samkomulag um fjármálastöðugleika milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna - 17.8.2010

Þriðjudaginn 17. ágúst 2010 gengur í gildi samkomulag um samvinnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna yfir landamæri til að tryggja fjármálastöðugleika og samhæfa viðbrögð við fjármálaáfalli sem snertir fleiri en eitt ríki.

Lesa meira
 

Samkomulag ráðuneyta og stofnana um samráð varðandi fjármálastöðugleika og viðbúnað - 16.8.2010

Forsætisráðherra, fjármálaráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins undirrituðu þann 6. júlí s.l. samkomulag um skipun nefndar um fjármálastöðugleika.

Lesa meira
 

Lánveitingar í erlendri mynt - 10.8.2010

Ráðuneytið birtir minnisblað frá 9. júní 2009 um lánveitingar í erlendri mynt. Ranglega hefur verið vitnað í ummæli ráðherra á Alþingi um lán í erlendri mynt. Lögmæti lána í erlendri mynt hafið yfir vafa. Réttarágreiningur um gengistryggingu.

Lesa meira
 

Kaup Magma Energy Sweden AB á hlutafé í HS Orku hf - 27.7.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur í dag sent HS Orku hf. og Magma Energy Sweden AB bréf þar sem upplýst er að á vegum stjórnvalda sé að fara af stað sjálfstæð og óháð rannsókn sem lúti að lögmæti kaupa Magma Energy Sweden AB á hlutafé í HS Orku hf.

Lesa meira
 

Kaup sérfræðiþjónustu vegna Magma Energy Sweden - 13.7.2010

Í tilefni af fjölmiðlaumfjöllun um málefni Magma Energy Sweden og álit nefndar um erlenda fjárfestingu á þeim kaupum upplýsir efnahags- og viðskiptaráðuneytið að ....

Lesa meira
 

Meirihlutaeign Magma Energy Sweden í HS Orku heimil - 8.7.2010

Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur fjallað um tilkynningu HS Orku hf. frá 25. maí 2010 um fjárfestingu MES (Magma Energy Sweden AB) á 52,35% viðbótarhlut í HS Orku hf. Lesa meira
 

Efnahags- og viðskiptaráðherra úthlutar styrkjum af ráðstöfunarfé ráðherra - 8.7.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur úthlutað styrkjum af ráðstöfunarfé ráðherra til fimm verkefna vegna ritgerðarsmíði og rannsókna.

Lesa meira
 

Yfirlýsing ríkisstjórnar vegna tilmæla Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins - 30.6.2010

Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa sent frá sér tilmæli til fjármálafyrirtækja um hvernig þeim beri að fara með gengisbundin lán.
Lesa meira
 

Dómar Hæstaréttar er varða lögmæti gengistryggðra lána - 16.6.2010

Hæstiréttur hefur kveðið upp dóma  í málum er varða lögmæti gengistryggðra lána.

Lesa meira
 
OECD Ráðherrafundur

Sameiginleg fréttatilkynning utanríkisráðuneytisins og efnahags-og viðskiptaráðuneytisins um ráðherrafund OECD í París 27.-28. maí 2010 - 28.5.2010

Dagana 27.-28. maí var haldinn í París árlegur ráðherrafundur Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sat fundinn að Íslands hálfu.

Lesa meira
 
Fundur með Olli Rehn

Ráðherra fundar með Olli Rehn - 26.5.2010

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra átti í gær fund með Olli Rehn sem fer með efnahags- og peningamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Lesa meira
 

Horfur í efnahagsmálum samkvæmt nýjustu spá OECD - 26.5.2010

Samkvæmt nýjasta yfirliti OECD um stöðu efnahagsmála á Íslandi hefur náðst töluverður árangur í að draga úr ójafnvægi í þjóðarbúskapnum.

Lesa meira
 

Formleg athugasemd Eftirlitsstofnunar EFTA - 26.5.2010

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi í dag frá sér formlega athugasemd (e. letter of formal notice) þar sem fram kemur það álit stofnunarinnar að íslenskum stjórnvöldum hafi borið skylda til þess að setja upp innstæðutryggingar sem tryggi innstæður að því lágmarki sem tilskipun um innlánatryggingakerfi nr. 94/19/EB kveður á um, eða 20.000 evrur.

Lesa meira
 

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um styrki. - 8.5.2010

Ráðherra hefur ákveðið að veita styrki tvisvar á ári vegna vinnslu ritgerðar eða rannsóknarverkefnis. Styrkurinn gæti numið allt að kr. 500.000.  Umsækjendur þurfa að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.

Lesa meira
 

Starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs sparisjóðs yfirtekin af nýjum fjármálafyrirtækjum - 23.4.2010

Undanfarna mánuði hafa stjórnvöld fylgst með samningaviðræðum Byrs sparisjóðs og Sparisjóðsins í Keflavík við kröfuhafa, með það fyrir augum að renna traustum stoðum undir efnahag og rekstur sparisjóðanna með frjálsum samningum.

Lesa meira
 

Viljayfirlýsing íslenskra stjórnvalda - 17.4.2010

Viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda er nú að finna á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytis.

Lesa meira
 

Önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands samþykkt í stjórn AGS - 16.4.2010

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti í dag föstudag 16. apríl 2010 á fundi í höfustöðvum AGS í Washington aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og AGS.

Lesa meira
 

Fyrstu viðbrögð efnahags- og viðskiptaráðuneytis við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis - 12.4.2010

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, sem gefin var út í dag, er fjallað um ýmis atriði er varða starfsemi viðskiptaráðuneytisins, nú efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Úr skýrslunni má meðal annars lesa gagnrýni á framkvæmd laga og eftirlits með fjármálamarkaði.

Lesa meira
 

Reglugerð um störf eftirlitsnefndar samkvæmt lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. - 9.4.2010

Ráðherra hefur undirritað og sent til birtingar reglugerð um störf eftirlitsnefndar samkvæmt lögum nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins í samráði við hagsmunaðila.

Lesa meira
 

Samkomulag um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands - 9.4.2010

Samkomulag hefur náðst um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við  Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins.

Lesa meira
 

Viðtækari heimildir Samkeppniseftirlitsins til að skipta upp markaðsráðandi fyrirtæki - 26.3.2010

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun föstudag 26. mars 2010 að vísa frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á samkeppnislögum til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis.

Lesa meira
 

Kaup Magma Energy Sweden á hlut í HS Orku heimil - 25.3.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur borist álit nefndar um erlenda fjárfestingu um tilkynningu HS Orku um fjárfestingu Magma Energy Sweden AB (MES) í hlutum HS Orku hf.

Lesa meira
 

Ráðherra leggur fram frumvörp til laga um vernd minni hluthafa og rannsókn á skuldum heimila - 23.3.2010

Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudag 23. mars 2010 að vísa til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis tveimur frumvörpum efnahags- og viðskiptaráðherra til laga.

Lesa meira
 

Ný lög auka gagnsæi eignarhalds og skerpa áherslu á jöfn kynjahlutföll - 4.3.2010

Alþingi samþykkti í dag frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög. Tilgangur frumvarpsins er að svara auknum kröfum sem fram hafa komið í ljósi liðinna atburða varðandi gagnsæi eignarhalds í hlutafélögum, um jafnari kynjahlutföll í stjórnum og minnka líkur á hagsmunaárekstrum í starfi stjórnarformanna. 

Lesa meira
 

Nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins - 1.3.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað Lilju Ólafsdóttur héraðsdómslögmann formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME), í stað Dr. Gunnars Haraldssonar  hagfræðings. Lesa meira
 

Engin samskipti milli viðskiptaráðuneytis og hollenskra yfirvalda um stöðu íslensku bankanna 2008 - 5.2.2010

Að gefnu tilefni vill efnahags- og viðskiptaráðuneytið árétta að viðskiptaráðuneytið hafði engin samskipti við Fjármálaeftirlit eða Seðlabanka Hollands til að skýra frá stöðu íslensku bankanna á árinu 2008.

Lesa meira
 

Yfirlýsing efnahags- og viðskiptaráðherra vegna ummæla við yfirheyrslur í hollenska þinginu - 2.2.2010

Við yfirheyrslur hollenskrar þingnefndar á mánudag lét fyrrum embættismaður í hollenska seðlabankanum þau ummæli falla að íslenskir embættismenn hefðu veitt rangar upplýsingar um stöðu íslensku bankanna í aðdraganda hruns fjármálakerfisins haustið 2008. Í ljósi þessara ummæla sendi Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Lesa meira
 

Straumhvörf á fjármálamarkaði - eftirlit, aðhald og ábyrgð - 29.1.2010

Föstudaginn 29. janúar 2010 boðaði efnahags- og viðskiptaráðuneytið til morgunfundar í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.

Lesa meira
 

Morgunfundur um nýtt regluverk og aðhald með fjármálastarfsemi á Íslandi - 27.1.2010

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið býður til morgunfundar í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins kl. 8:15 – 10:00 föstudaginn 29. janúar 2010 undir yfirskriftinni: „Straumhvörf á fjármálamarkaði – eftirlit, aðhald og ábyrgð.“

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica