Beint í leiðarkerfi vefsins.
Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra flutti framsögu um stöðu íslenskra efnahagsmála á fjölsóttum, opnum fundi norsk-íslenska verslunarráðsins í Osló í dag.
Lesa meiraÁrni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti í dag nýja efnahagsáætlun á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu.
Lesa meiraRæða Árna Páls Árnasonar efnahagsráðherra flutt á ráðstefnu Ísland á batavegi: Lærdómar og verkefni framundan í Hörpunni 27. október 2011. Ræðan er á ensku.
Eftirlitsnefnd vegna aðgerða í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins skilaði efnahags- og viðskiptaráðherra þriðju skýrslu sinni 9. september sl.
Alþingi samþykkti á laugardag frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á lögum um gjaldeyrismál og tollalögum. Lagasetningin er liður í áætlun stjórnvalda um losun gjaldeyrishafta, sem innleidd voru í kjölfar bankahruns í október 2008.
Lesa meira
Samningur um vottun fjármálaráðgjafa var undirritaður í dag. Verkefnið er samstarfssamningur efnahags- og viðskiptaráðuneytis, Háskólans á Bifröst, viðskiptafræðideildar HÍ, Háskólans í Reykjavík, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).
Lesa meira„Fjármálablinda – þörf á framtíðarsýn“ er yfirskrift ráðstefnu um fjármálalæsi sem fram fer í Þjóðmenningarhúsinu, 9. september næstkomandi.
Stjórn AGS samþykkti í Washington í dag síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands sem þar með verður fyrsta ríkið til að útskrifast úr slíkri áætlun í yfirstandandi alþjóðafjármálakreppu.
Lesa meiraVakin er athygli á því að þeir sem vilja óska eftir niðurfærslu veðskulda af íbúðalánum samkvæmt svokallaðri 110% leið þurfa að sækja um það fyrir 1. júlí næstkomandi. Frestur til að sækja um niðurfærslu veðskulda samkvæmt samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði rennur út 30. júní næstkomandi.
Lesa meiraEfnahags- og framfarastofnunin (OECD) kynnti í dag skýrsluna Economic Survey um þróun efnahagsmála á Íslandi. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á 18-24 mánaða fresti fyrir hvert og eitt aðildarríki OECD og var Ísland síðast til umfjöllunar árið 2009.
Lesa meiraÁrni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra flutti í dag framsögu um Ísland sem fjárfestingakost og hagstjórn landsins á opnum fundi dansk-íslenska verslunarráðsins í Kaupmannahöfn.
Lesa meiraEftirlitsstofnun EFTA sendi íslenskum stjórnvöldum rökstutt álit um Icesave-málið í morgun. Í því kemur fram sú afstaða stofnunarinnar að Íslandi beri að tryggja að innstæðueigendur í Icesave í Hollandi og Bretlandi fái greiddar að lágmarki 20.887 evrur í samræmi við tilskipun um innstæðutryggingar. Fellst stofnunin ekki á svör íslenskra stjórnvalda frá 2. maí sl.
Lesa meiraEfnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur látið þýða viljayfirlýsingu stjórnvalda (e. Letter of Intent), sem send var Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 19. maí sl. í tengslum við fimmtu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og AGS.
Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti fimmtu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins á fundi sínum í Washington í dag, 3. júní.
Lesa meiravoru sett í desember sl. í þeim tilgangi að færa öllum lántökum gengistryggðra lána ávinning til samræmis við dómsniðurstöðu Hæstaréttar um ógildi gengistryggðra lána. Með löggjöfinni lækkaði skuldastaða heimilanna um 50 milljarða króna.
Lesa meiraÍslensk stjórnvöld hafa sent Alþjóðagjaldeyrissjóðnum viljayfirlýsingu vegna fimmtu endurskoðunar efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við sjóðinn.
Lesa meiraÁrni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra fundaði í dag með stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þar sem svar Íslands til stofnunarinnar vegna Icesave-málsins var reifað og rætt.
Lesa meiraÁrni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra flutti framsögu Íslands á samráðsvettvangi umsóknarríkja með efnahags- og fjármálaráðherrum ESB (ECOFIN) í Brussel í dag.
Lesa meiraÁrni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra flutti ræðu um íslensku leiðina út úr fjármálakreppu á opinni ráðstefnu CEPS hugmyndaveitunnar í Brussel í gær. Fundinum stýrði Onno Ruding, fv. fjármálaráðherra Hollands. Auk ráðherra töluðu Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Daniel Gros hagfræðingur.
Lesa meiraEfnahags- og viðskiptaráðuneytið stendur fyrir morgunverðarfundi um verðtryggingu miðvikudaginn 18. maí kl. 8.30-10.00. Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík, stofu M1.01 – Bellatrix.
Lesa meiraHorfur eru á að allur þorri þeirra fyrirtækja sem falla undir samkomulag um skuldaúrvinnslu lítilla og meðalstórra fyrirtækja fái tilboð um endurskipulagningu skulda sinna fyrir 1. júní nk. Í einstökum tilvikum munu sumir bankanna þurfa júnímánuð til að ljúka tillögugerð.
Lesa meiraUndir skrifstofuna heyra m.a. málefni er varða fjármálafyrirtæki, vátryggingar, verðbréfaviðskipti, aðgerðir gegn peningaþvætti, neytendalán, tryggingasjóð innistæðueigenda og fjárfesta, tryggingarsjóð sparisjóðanna, opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og Fjármálaeftirlitið.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní n.k.
Eygló Harðardóttir, formaður nefndar um verðtryggingu, afhenti í morgun Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, skýrslu nefndar sem falið var að kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi og meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi, án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað.
Lesa meirasland hafnar því að brot gegn innistæðutryggingatilskipun Evrópusambandsins hafi átt sér stað og krefst þess að mál Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) verði látið niður falla. Sendiherra Íslands í Brussel afhenti bréf efnahags- og viðskiptaráðuneytisins þess efnis á skrifstofu ESA í dag, en þar er málstaður Íslands í Icesave málinu settur fram.
Lesa meiraEfnahags- og viðskiptaráðuneytið boðar til blaðamannafundar kl. 16 í dag í Þjóðmenningarhúsinu vegna svarbréfs stjórnvalda til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave.
Lesa meiraMótun peningastefnu til framtíðar verður eitt viðamesta verkefni efnahagsstjórnunar á Íslandi næstu misserin. Í desember síðastliðnum skilaði Seðlabanki Íslands skýrslu til efnahags- og viðskiptaráðherra um peningastefnu eftir höft.
Lesa meiraÍ dag þriðjudag, 12. apríl, boðar efnahags- og viðskiptaráðuneytið til málstofu um mótun framtíðarstefnu í peningamálum. Málstofan hefst kl. 15:00 í sal HT-102 í Háskóla Íslands (á Háskólatorgi).
Lesa meiraEfnahags- og viðskiptaráðuneytið leitar umsagna um drög að reglugerð um rafrænar undirskriftir. Umsagnafrestur er til 10. maí og skulu umsagnir sendast á postur@evr.is.
Lesa meiraRíkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag áætlun um losun gjaldeyrishafta í áföngum í samræmi við tillögu Seðlabanka Íslands sem unnin hefur verið í samráði við efnahags- og viðskiptaráðuneyti, fjármálaráðuneyti og Fjármálaeftirlit.
Lesa meiraEfnahags- og viðskiptaráðuneytið boðar til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu kl. 16 í dag.
Lesa meiraUndanfarið hefur sérstakur stýrihópur, sem í eiga sæti efnahags- og viðskiptaráðherra, fjármálaráðherra, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins, haft forystu um mótun áætlunar um afnám gjaldeyrishafta.
Lesa meiraNefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað ráðherra áliti vegna kaupa GGL (Global Geothermal Limited) á rafmagnsframleiðslustöð OH ehf. (Orkuveitu Húsavíkur). Mat nefndarinnar er að kaupin gangi ekki gegn ákvæðum laga um erlenda fjárfestingu.
Lesa meiraStjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun fjalla um fimmtu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á fundi sínum í apríl næstkomandi. Þetta kom fram í tilkynningu sem sendinefnd AGS á Íslandi gaf út í dag.
Olli Rehn, framkvæmdastjóri efnahags- og gjaldeyrismála hjá Evrópusambandinu, og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, funduðu í Brussel í dag í tilefni af nýútkominni skýrslu um þróun efnahagsmála á Ísland til ársins 2013.
Lesa meiraEfnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skýrslu um íslensk efnahagsmál til ársins 2013 (Pre-Accession Economic Programme). Skýrslan er hluti af undirbúningi aðildarumsóknar og verður sambærilegri skýrslu skilað árlega á meðan á því ferli stendur.
Lesa meiraÍ dag var undirritað samkomulag um nánari útfærslu aðgerða í þágu yfirveðsettra heimila í samræmi við 1. tölulið viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og lánveitenda, frá 3. desember sl.
Lesa meiraStjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins á fundi sínum í Washington í dag, 10. janúar.