Fréttatilkynningar

Matsfyrirtækið Fitch hækkar lánshæfismat Íslands upp í fjárfestingarflokk - 17.2.2012

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfismat Íslands upp í fjárfestingarflokk með stöðugum horfum. Fitch hækkaði einkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt úr BB+ í BBB-. Lesa meira
 

Áhrif gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012 - 17.2.2012

Í dómi Hæstaréttar nr.600/2011 er fallist á rök lántakenda þess efnis að ekki hafi verið heimilt fyrir lánveitanda að krefja lántaka gengistryggðs láns um vexti samkvæmt viðmiðun Seðlabanka Íslands eftir fyrri úrskurð Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána þar sem lántaki gat sýnt fram á fullnaðarkvittun um greiðslu vaxta af láni sínu. Niðurstaða réttarins er því að í slíkum tilfellum skuli miða við samningsvexti þrátt fyrir ólögmæti gengistrygginar. Lesa meira
 

Ræða efnahags- og viðskiptaráðherra á Alþingi um gengislán - 17.2.2012

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, flutti munnlega skýrslu á Alþingi 16. febrúar 2012 um dóm Hæstaréttar um gengislán, sem féll degi áður. Ræðuna má lesa á vef ráðuneytisins. Lesa meira
 

Skýrsla um þróun efnahagsmála send ESB - 2.2.2012

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skýrslu um íslensk efnahagsmál (Pre-Accession Economic Programme).

Lesa meira
 
Valdimar Halldórsson

Nýr aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra - 27.1.2012

Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar efnahags- og viðskiptaráðherra.
Lesa meira
 

Eftirgjöf skulda yfir einum milljarði króna - 17.1.2012

Eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar birtir greinargerð um endurskipulagningu fyrirtækja þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna.

Lesa meira
 
Ráðherraskipti, Steingrímur tekur við lykli af Árna Pál.

Nýr ráðherra efnahags- og viðskiptaráðuneytis - 2.1.2012

Á gamlársdag fóru fram lyklaskipti í efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Lesa meira
 
skipurit-evr

Nýtt skipurit efnahags- og viðskiptaráðuneytis - 2.1.2012

Nýtt skipurit efnahags- og viðskiptaráðuneytis gildir frá 1. janúar 2012. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica