Fréttir frá stofnunum

9.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Athugasemdir vegna umræðu um niðurstöður þjóðhagsreikninga Hagstofu Íslands í september 2010

Beitt er sömu aðferðum á Íslandi við árstíðaleiðréttingar og í flestum öðrum Evrópuríkjum. Í kjölfar efnahagskreppunnar hafa árstíðaleiðréttar tölur sýnt afar sveiflukenndar niðurstöður hjá flestum smærri ríkjum í Evrópu. Hagstofa Íslands hefur ítrekað gert fyrirvara við árstíðaleiðréttar tölur í Hagtíðindum.
Lesa meira
 

9.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Starfsfólk í háskólum í nóvember 2009

Starfsmönnum í skólum á háskólastigi hefur fækkað um 125 frá síðasta skólaári (4,1%) og stöðugildum um 54 (2,3%). Á sama tímabili fjölgaði nemendum í skólum á háskólastigi um 5,8%.
Lesa meira
 

8.9.2010 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Skýrsla til Alþingis um störf peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands

Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári. Ennfremur segir í lögunum að efni skýrslunnar skuli rætt á sameiginlegum fundi efnahags- og skattanefndar, fjárlaganefndar og viðskiptanefndar. Fyrri skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á árinu 2010 hefur nú verið send Alþingi og er birt hér á vef Seðlabanka Íslands.
Lesa meira
 

8.9.2010 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Frumgerð að nýju þjóðhagslíkani Seðlabankans

Út er komin rannsóknarritgerð nr. 50, A DSGE model for Iceland (Tímatengt, almennt jafnvægislíkan með slembistærðum fyrir Ísland). Höfundur ritgerðarinnar er Martin Seneca sem starfað hefur á hagfræðisviði bankans.
Lesa meira
 

8.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Vísitala launa á 2. ársfjórðungi 2010

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,2% hærri á öðrum ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,5% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,4% að meðaltali.
Lesa meira
 

8.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Ársskýrsla Hagstofu Íslands 2009

Ársskýrsla Hagstofu Íslands fyrir árið 2009 hefur nú verið gefin út. Er það önnur ársskýrslan sem Hagstofan sendir frá sér, en stofnunin varð sjálfstæð stofnun 2008 samkvæmt lögum nr. 163/2007.
Lesa meira
 

7.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Vöruskipti við útlönd, bráðabirgðatölur fyrir ágúst 2010

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2010 var útflutningur fob 41,8 milljarður króna og innflutningur fob 39,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Lesa meira
 

7.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Útgáfa rits OECD, Education at a Glance 2010

Útgjöld Íslendinga til menntastofnana námu 7,8% af vergri landsframleiðslu árið 2007 og var Ísland í efsta sæti meðal OECD ríkja hvað þessi útgjöld varðar. Vegið meðaltal OECD ríkja var 6,2% og meðaltal ríkjanna var 5,7%.
Lesa meira
 

7.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Frétt um fæðingar 2009 frestað

Frétt um fæðingar 2009 sem birta átti í dag þriðjudaginn 7. september hefur verið frestað til föstudagsins 10. september n.k.
Lesa meira
 

6.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2009

Innflutt hráefni til fiskvinnslu var 43.866 tonn árið 2009 og dróst saman í magni um tæp 87 þúsund tonn frá fyrra ári eða um 66%. Verðmæti þessa innflutnings var 6,2 milljarðar króna sem er tæplega 1,9 milljarða króna lægri fjárhæð en árið 2008 á verðlagi hvors árs.
Lesa meira
 

6.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2010

Á 2. ársfjórðungi 2010 var tekjuhalli hins opinbera 30 milljarða króna samanborið við um 42 milljarða króna tekjuhalla á sama tíma 2009. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn 8,0% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 18,6%.
Lesa meira
 

3.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Gistinætur og gestakomur á hótelum í júlí 2010

Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 193.500 en voru 203.200 í sama mánuði árið 2009. Fækkun gistinátta í júlí nær til allra landsvæða nema Vesturlands, Vestfjarða og Suðurnesja.
Lesa meira
 

3.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Landsframleiðslan 2009 - endurskoðun

Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 6,8% samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2009. Í áætlun frá því í mars síðastliðnum var talið að samdrátturinn á árinu 2009 hafi numið 6,5%.
Lesa meira
 

3.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2010

Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 3,1% að raungildi frá 1. ársfjórðungi 2010 til 2. ársfjórðungs 2010. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 7,4%. Einkaneysla dróst saman um 3,2% og fjárfesting dróst saman um 4,7%. Samneysla jókst um 1,0%.
Lesa meira
 

1.9.2010 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands vegna vaxtaákvörðunar 18. ágúst

Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá 16. og 17. ágúst vegna ákvörðunar um vexti hinn 18. ágúst síðastliðinn er nú aðgengileg hér á vef bankans.
Lesa meira
 

1.9.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Starfsfólk í framhaldsskólum í nóvember 2009

Alls höfðu 82,2% starfsmanna við kennslu í nóvember 2009 kennsluréttindi og hefur fjölgað úr 78,0% árið áður. Hlutfall réttindakennara hefur ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir áratug.
Lesa meira
 

31.8.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Verðmæti sjávarafla janúar-maí 2010

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 samanborið við 43,1 milljarð á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 14 milljarða eða 32,4% á milli ára.
Lesa meira
 

31.8.2010 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Vöruskipti við útlönd í janúar-júlí 2010

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 44,0 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna fob (42,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,6 milljarða króna. Í júlí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 0,4 milljarða króna á sama gengi.
Lesa meira
 

30.8.2010 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2010

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2010 og um stöðu þjóðarbúsins í lok fjórðungsins. Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 9 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi samanborið við rúmlega 18 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð á fjórðungnum á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 32,5 ma.kr. og 13,5 ma.kr. afgangur var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 53 ma.kr.
Lesa meira
 

27.8.2010 Einkaleyfastofan Ársskýrsla Einkaleyfastofunnar 2009 er komin á vefinn

Skýrsluna má nálgast með því að smella hér.
Lesa meira
 

Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica