Fréttatilkynningar

Nýr skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.

27.2.2006

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti

Nr. 3/2006

Guðjón Axel Guðjónsson hefur verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu orkumála í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti frá 1. mars næstkomandi. Guðjón Axel hefur starfað í iðnaðarráðuneytinu frá árinu 1996 sem deildarsérfræðingur á orkuskrifstofu. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands vorið 1996.

Helgi Bjarnason sem gegnt hefur starfi skrifstofustjóra orkuskrifstofu frá árinu 2000 mun hverfa til starfa hjá Landsvirkjun.

 

Reykjavík, 27. febrúar 2006.



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica