Fréttatilkynningar

Nýr ráðherra viðskiptaráðuneytis

2.2.2009

  • Gylfi Magnússon tekur við af Björgvini G Sigurðssyni sem viðiskiptaráðherra

Gylfi Magnússon tók við embætti viðskiptaráðherra sunnudaginn 1. febrúar 2009, af Björgvini G. Sigurðssyni, sem baðst lausnar 25. janúar síðastliðinn. Björgvin hafði gegnt embættinu frá 24. maí 2007.

Athöfnin fór fram á skrifstofu viðskiptaráðherra.

Gylfi Magnússon er 42 ára. Hann lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale háskóla í Bandaríkjunum og hefur verið dósent við Háskóla Íslands frá 1998.

Eiginkona Gylfa er Hrafnhildur Stefánsdóttir og eiga þau fimm börn.



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica