Fréttatilkynningar

Yfirlýsing frá viðskiptaráðherra

10.2.2009

Yfirlýsing frá viðskiptaráðherra

Afstaða ríkisstjórnarinnar varðandi innstæður útibúa íslenskra banka á Evrópska efnahagssvæðinu hefur ekki breyst síðan í nóvember 2008 þegar Ísland og Evrópusambandið og nokkur aðildarríki þess komust að sameiginlegum viðmiðum um lausn á málefnum innstæðueigenda útibúa Landsbankans í Bretlandi og Hollandi (Icesave) og Kaupþings í Þýskalandi (Edge). Á grundvelli þessa samþykkti Alþingi þingsályktun um að fela ríkisstjórninni að leiða til lykta samninga við viðeigandi stjórnvöld vegna þessa máls. Samningaviðræður standa yfir og mun þeim vonandi ljúka fljótlega.

Viðskiptaráðuneytinu, 10. febrúar 2009



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica