Fréttatilkynningar

Nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins

1.3.2010

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað Lilju Ólafsdóttur héraðsdómslögmann formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME), í stað Dr. Gunnars Haraldssonar  hagfræðings. Gunnar óskaði lausnar frá störfum stjórnarformanns 15. febrúar síðastliðinn, en hann hverfur nú til starfa á vettvangi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í París.  
Lilja lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1982 og LLM prófi frá Yale háskóla árið 1983. Hún er starfandi lögmaður í Reykjavík og hefur m. a. verið ráðgjafi stjórnar FME síðan í júní 2009.  Lilja var samningamaður Íslands um laga- og stofnanamál við gerð samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og starfaði um árabil sem yfirlögfræðingur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) í Genf.  Þá hefur hún verið alþjóðlegur ráðgjafi og samningamaður á sviði viðskiptamála og varafastafulltrúi Íslands við ýmsar alþjóðastofnanir.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica