Fréttatilkynningar

Dómar Hæstaréttar er varða lögmæti gengistryggðra lána

16.6.2010

Hæstiréttur hefur kveðið upp dóma  í málum er varða lögmæti gengistryggðra lána. Þessi mál varða fyrst og fremst aðila máls en hafa einnig almenn áhrif á viðskipti fjármálafyrirtækja og lántakenda. Stjórnvöld hafa fylgst náið með ferli þessara dómsmála og hafa látið greina ítarlega áhrif mögulegra niðurstaðna Hæstaréttar.  Ákvarðanir um aðgerðir af hálfu stjórnvalda verða teknar á grundvelli þessarar greiningar.  Nánar verður skýrt frá þeim ákvörðunum á allra næstu dögum og í framhaldi af umfjöllun ríkisstjórnarinnar og að höfðu víðtæku samráði um málið.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica