Fréttatilkynningar

Mannabreytingar í starfi ráðuneytisstjóra

14.4.1998

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Nr. 5/1998



Halldór J. Kristjánsson, settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti hefur í dag óskað eftir lausn frá störfum til að taka við starfi aðalbankastjóra Landsbanka Íslands hf. og hefur iðnaðar- og viðskiptaráðherra fallist á það fyrir sitt leyti.

Í stað Halldórs hefur verið settur í starf ráðuneytisstjóra til næstu áramóta að telja, Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Þórður hefur frá sama tíma fengið leyfi frá störfum sínum við stofnunina.




Reykjavík, 14. apríl 1998

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica