Fréttir frá stofnunum

22.2.2012 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands vegna vaxtaákvörðunar 8. febrúar

Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá 6. og 7. febrúar vegna ákvörðunar um vexti hinn 8. febrúar síðastliðinn er nú aðgengileg hér á vef bankans.
Lesa meira
 

22.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Launavísitala óbreytt frá fyrri mánuði

Launavísitala í janúar 2012 er 418,2 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,1%. Vísitala kaupmáttar launa í janúar er 110,8 stig og lækkar um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,5%
Lesa meira
 

21.2.2012 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Lesa meira
 

21.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Verðmæti sjávarafla janúar-nóvember 2011

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 143 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011 samanborið við tæpa 125 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 18,3 milljarða króna eða 14,7% á milli ára.
Lesa meira
 

21.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Dánartíðni og ævilengd 2011

Árið 2011 létust 1.985 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 998 karlar og 987 konur. Dánartíðni var 6,2 látnir á hverja 1.000 íbúa og lækkaði lítillega frá árinu 2010. Ungbarnadauði á Íslandi var 0,9 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2011 en var 2,2 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2010.
Lesa meira
 

20.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Vinnumarkaður 2011

Á árinu 2011 voru 180.000 á vinnumarkaði eða 80,4% atvinnuþátttaka. Fjöldi starfandi var 167.300 hlutfall þeirra af vinnuafli var 74,7%. Árið 2011 voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,1% vinnuaflsins.
Lesa meira
 

20.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Vísitala byggingarkostnaðar hækkar um 1,6% milli mánaða

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan febrúar 2012 er 113,0 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 1,6% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni hækkaði um 3,2% (áhrif á vísitölu 0,9%) en verð á innlendu efni hækkaði um 0,6% (0,2%).
Lesa meira
 

17.2.2012 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Matsfyrirtækið Fitch hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands

Matsfyrirtækið Fitch hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BB+ og eru horfur stöðugar. Lánshæfismat Íslands er því á ný komið í fjárfestingaflokk hjá Fitch.
Lesa meira
 

16.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Fiskafli í janúar 2012

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 41,9% meiri en í janúar 2011. Aflinn nam alls 193.811 tonnum í janúar 2012 samanborið við 119.669 tonn í janúar 2011
Lesa meira
 

15.2.2012 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 12. janúar 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701.
Lesa meira
 

15.2.2012 Seðlabanki Íslands - Nýjustu fréttir Málstofa verður haldin þriðjudaginn 21. febrúar kl. 15:00 í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli

Fjallað verður um stífni nafnlauna og launaákvarðanir. Frummælendur eru: Jósef Sigurðsson og Rannveig Sigurðardóttir. Umfjöllunin byggir á grein um sama efni sem kom út í rannsóknaritgerðaröð Seðlabanka Íslands í ágúst sl.
Lesa meira
 

15.2.2012 Einkaleyfastofan ELS tíðindi

els_tidindi2. tölublað

ELS-tíðinda er nú aðgengilegt á vefnum. Tíðindin eru aðeins birt með rafrænum hætti. Útprentun af tíðindunum er þó fáanleg hjá Einkaleyfastofunni gegn greiðslu.

Lesa meira
 

15.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Villur í tölum um 1. desember

Komið hefur í ljós villa í aldursskiptingu talna um mannfjöldann 1. desember 2011. Tafla um skiptingu landsmanna eftir sveitarfélögum, kyni og aldri 1. desember 2011 frá því 14. febrúar eru því endurbirtar, sem og tvær töflur um skiptingu eftir trúfélögum og sóknum sem birtar voru 7. febrúar.
Lesa meira
 

14.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Mannfjöldi 1. janúar 2012

Hinn 1. janúar 2012 voru landsmenn alls 319.575 og hafði fjölgað um 1.123 frá sama tíma árið 2011. Þetta jafngildir fjölgun landsmanna um 0,4%. Konum fjölgaði nokkuð meira en körlum eða um 0,5% á móti 0,2%.
Lesa meira
 

7.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Frétt um mannfjölda 1. janúar 2012 frestað

Fréttatilkynningu um mannfjöldann 1. janúar 2012, sem birtast átti í dag 7. febrúar, hefur verið frestað til þriðjudagsins 14. febrúar 2012.
Lesa meira
 

6.2.2012 Einkaleyfastofan Innlánsreikningar fyrir viðskiptavini Nordic Patent Institute

logo1Nordic Patent Institute býður viðskiptavinum sínu uppá þann valkost að stofna innlánsreikning hjá stofnuninni, sjá nánar hér.
Lesa meira
 

3.2.2012 Einkaleyfastofan Norrænt námskeið um alþjóðlega skráningu vörumerkja

WIPO_logo_newNorska einkaleyfastofan og Alþjóðahugverkastofnunin, WIPO, standa fyrir námskeiði um alþjóðlega skráningu vörumerkja í Osló þann 22. mars næstkomandi. Námskeiðið er einkum hugsað fyrir umboðsmenn vörumerkja, norræn fyrirtæki og aðra þá sem hafa áhuga á vörumerkjavernd.
Lesa meira
 

3.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Gistinóttum fjölgar um 27% í desember

Gistinætur á hótelum í desember voru 69.200 samanborið við 54.300 í desember 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 76% af heildarfjölda gistinátta í desember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 37% samanborið við desember 2010. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 4%.
Lesa meira
 

3.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Vöruskiptin í janúar voru hagstæð um 12,0 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2012 var útflutningur fob tæpir 49,3 milljarðar króna og innflutningur fob 37,2 milljarðar króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Lesa meira
 

2.2.2012 Nýjustu fréttir Hagstofu Íslands Leiðrétting á vöruskiptunum 2011

Vegna villu í grunngögnum í desember þarf að leiðrétta bráðabirgðatölur um vöruskiptin við útlönd 2011. Útflutningur í desember 2011 lækkar því um 7,6 milljarða í heild. Endanlegar niðurstöður um vöruskiptin fyrir árið 2011 verða gefnar út í apríl 2012.
Lesa meira
 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica