Upplýsingar um leyfi

Verslun með notuð ökutæki

Ákvæði um sölu notaðra ökutækja eru í IV. kafla laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu. Til að reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki er nauðsynlegt að hafa sérstakt leyfi sýslumanns í umdæmi þar sem föst starfsstöð bifreiðasala er. Til að einstaklingar eða lögaðilar geti öðlast leyfið skulu þeir uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Hafa búsetu á Íslandi. Skilyrði um búsetu á þó ekki við um ríkisborgara og lögaðila annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga og lögaðila í Færeyjum
  2. Einstaklingar sem sækja um leyfið skulu hafa náð tuttugu ára aldri,
  3. Einstaklingar sem sækja um leyfið skulu vera lögráða og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og lögum um sölu notaðra ökutækja,
  4. Umsækjendur skulu hafa forræði á búi sínu
  5. Umsækjendur skulu leggja fram sönnun þess að þeir hafi tekið ábyrgðatryggingu hjá vátryggingafélagi sem hefur heimild til að veita þjónustu á Íslandi, aflað sér bankatryggingar eða lagt fram aðrar tryggingar sem ráðherra metur gildar og bæta viðskiptamönnum tjón er þeir kunna að baka þeim með störfum sínum sem bifreiðasalar.
  6. Umsækjendur skulu hafa sótt námskeið og lokið þar prófi samkvæmt prófkröfum sem settar eru íreglugerð nr. 45/2003 um námskeið og próf til að öðlast leyfi til sölu notaðra ökutækja.

Ef umsækjandi er lögaðili þarf meirihluti stjórnarmanna að fullnægja skilyrðum í 1. – 4. lið hér að framan. Nánari upplýsingar um leyfi til sölu notaðra ökutækja veitir sýslumaður í því umdæmi þar sem föst starfsstöð bifreiðasala er.

Allar nánari upplýsingar um leyfi til sölu notaðra ökutækja veitir Sýslumaðurinn í Reykjavík.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica