Upplýsingar um leyfi

Starfsleyfi vátryggingafélaga.

Starfsleyfi vátryggingafélaga eru veitt samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 60/1994.

Sækja skal um starfsleyfi til Fjármálaeftirlitsins í samræmi við ákvæði 21. gr. – 27. gr. laga nr. 60/1994.

Nánari upplýsingar um starfsleyfi vátryggingafélaga veitir Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri.

Meðferð umsóknar:

Umsókn um starfsleyfi vátryggingafélags skal senda Fjármálaeftirlitinu innan sex mánaða frá dagsetningu stofnsamnings. Fjármálaeftirlitið metur umsókn félags um starfsleyfi og skal hún liggja fyrir innan sex mánaða frá móttöku umsóknar og allra gagna sem fylgja eiga umsókn. Mæli Fjármálaeftirlitið með umsókninni veitir viðskiptaráðherra starfsleyfi.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica