Almennar upplýsingar
Hlutverk efnahags- og viðskiptaráðuneytis gagnvart endurskoðendum og bókurum
Ráðuneytið fer með framkvæmd og eftirlit laga um endurskoðendur og viðurkennda bókara og ráðherra setur reglugerðir á grundvelli laganna.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur á vef Alþingis, teljast þeir vera endurskoðendur sem hafa þekkingu til að gefa hlutlaust og áreiðanlegt álit á reikningsskilum og öðrum fjárhagsupplýsingum, ráðherra hefur löggilt til endurskoðunarstarfa og fullnægja að öðru leyti skilyrðum laga þessara.
Til þess að öðlast löggildingu til endurskoðunar verður viðkomandi að standast próf sem þriggja manna prófnefnd annast. Ráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn. Próf skulu haldin að jafnaði einu sinni á ári og er það ráðherra sem gefur út löggildingarskírteini handa endurskoðanda. Nánar er kveðið á um fyrirkomulag prófa í reglugerð nr. 589/2009, um próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa. Endurskoðandi sem hefur ekki lagt inn réttindi sín sbr. 6. mgr. 7. gr. laga nr. 18/1997, um endurskoðendur, skal á hverju þriggja ára tímabili sækja endurmenntun. Heimilt er að víkja frá þessu ef sérstaklega stendur á samkvæmt ákvörðun ráðherra. Nánar er kveðið á um endurmenntun endurskoðenda í samnefndri reglugerð nr. 30/2011.
Ráðuneytinu ber að halda skrá um þá sem fengið hafa löggildingu til endurskoðunar sem og skrá yfir endurskoðunarfyrirtæki.
Endurskoðanda er skylt að hafa í gildi starfsábyrgðartryggingu hjá vátryggingarfélagi, sem hefur starfsleyfi hér á landi, vegna fjárhagstjóns sem leitt getur af gáleysi í störfum hans eða starfsmanna hans. Endurskoðenda ber árlega að senda ráðuneytinu staðfestingu um að hann hafi í gildi starfsábyrgðartryggingu. Í reglugerð nr. 673/1997, um starfsábyrgðartryggingu endurskoðenda, er að finna nánari útlistun á tryggingarskilmálum.
Samkvæmt 43. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald með síðari breytingum á vef Alþingis, geta þeir einir sem teknir hafa verið á skrá sem fjármálaráðuneytið heldur, kallað sig viðurkennda bókara. Sá sem óskar að fá viðurkenningu sem bókari og tekin er á skrá fjármálaráðuneytis skal fullnægja eftirfarandi skilyrðum:
- Vera heimilisfastur hér á landi.
- Vera lögráða og hafa forræði á búi sínu.
- Hafa staðist próf sem nánar er kveðið á um í reglugerð nr. 473/2001, um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara.
