Staðfesting efnahags- og viðskiptaráðherra á siðareglum endurskoðenda
Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur staðfest siðareglur fyrir endurskoðendur sem settar hafa verið af Félag löggiltra endurskoðenda og samþykktar voru á aðalfundi félagsins 5. nóvember 2010, í samræmi við 13. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur. Eins og fram kemur í inngangi og ýmsum ákvæðum siðareglnanna er siðareglunum ætlað að geyma lágmarkskröfur til endurskoðenda um störf þeirra og stöðu og þar sem lög og stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um strangari reglur en fram koma í siðareglunum ganga ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla framar ákvæðum siðareglnanna. Á það meðal annars við um ákvæði í XI. kafli laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, VII. kafla laga nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi, VIII. kafli laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, VI. og X. kafla laga nr. 79/2008 um endurskoðendur, o.fl.
