Almennt
Almennar upplýsingar
Verkefni er varða fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala færðust til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins 1. janúar 2008. Samkvæmt lögum nr. 99/2004 um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa er einungis löggiltum fasteignasölum og lögmönnum heimilt að hafa milligöngu um fasteignaviðskipti. Til þess að geta fengið löggildingu sem fasteignasali þarf að uppfylla ákveðin skilyrði um búsetu, lögræði o.fl. og standast próf fyrir fasteignasala skv. 2. og 3. gr. laganna.
Ráðuneytið skipar prófnefnd fasteignasala sem hefur á hendi forstöðu námskeiða og ber ábyrgð á framkvæmd þeirra. Heimilt er að semja við háskóla um framkvæmd námskeiða sem skal stofna til á hæfilegum fresti. Kostnaður vegna námskeiða og prófa greiðist með kennslu- og prófagjöldum.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði annast löggildingu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala samkvæmt reglugerð nr. 1123/2006.
Helstu verkefni ráðuneytisins samkvæmt lögum nr. 99/2004 eru að annast skipun prófnefndar og skipun Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. Jafnframt úrskurðar ráðherra þegar ákvörðunum Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala hefur verið skotið til hans, sbr. 23. gr. laganna.
