Beint í leiðarkerfi vefsins.
Eftirlitsnefnd félags fasteignasala starfar samkvæmt 19. gr. laga um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa nr. 99/2004. Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala skal hafa eftirlit með því að fasteignasalar starfi í samræmi við fyrirmæli laganna, siðareglur félagsins og góðar venjur í fasteignasölu og hefur nefndin ákveðnar heimildir til rannsóknar beitingar agaviðurlaga skv. III. kafla laganna.
NánarPrófnefnd fasteignasala starfar samkvæmt 3. gr. laga um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu, nr. 99/2004. Prófnefndin skal hafa á hendi forstöðu námskeiðs til réttindanáms fyrir þá sem vilja öðlast löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasalar samkvæmt lögum 99/2004 og reglugerð 837/2004 um námskeið og prófraun til að öðlast löggildingu.
Nánar