Almennar upplýsingar
Lagastoð
Tilkynningar þessar eiga sér stoð í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991. Í 7. gr. þeirra laga kemur fram að tilkynna beri viðskiptaráðherra alla erlenda fjárfestingu jafnskjótt og samningur eða ákvarðanir þar að lútandi liggja fyrir. Tilkynningarskyldan tekur bæði til fjárfestingar erlends aðila í atvinnufyrirtæki sem hann hefur ekki átt í áður og viðbótarfjárfestingar í slíku fyrirtæki.
Af hverju er þessi tilkynningarskylda?
Lög nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri kveða á um frelsi erlendra aðila til fjárfestinga hér á landi í meginatriðum. Þó eru undantekningar þar frá. Sú mikilvægasta er að erlendir aðilar mega ekki fjárfesta beint í veiðum og frumvinnslu sjávarafurða skv. 4. gr. laganna. Tilkynningarskyldan er því fyrst og fremst til að gera viðskiptaráðherra kleift að fylgjast með að ákvæði laganna séu ekki brotin. Viðskiptaráðherra sendir tilkynningar um erlenda fjárfestingu til umsagnar til sérstakrar þingskipaðrar nefndar um erlenda fjárfestingu. Nefndin hefur það hlutverk að fylgjast með að ákvæði laganna sé framfylgt og vera ráðherra til ráðuneytis.
Hverjir eru tilkynningarskyldir?
Sé um að ræða erlenda fjárfestingu í íslensku atvinnufyrirtæki hvílir tilkynningarskyldan á viðkomandi atvinnufyrirtæki, en sé um að ræða fyrirhugaða atvinnustarfsemi hér á landi í eigin nafni erlends aðila hvílir tilkynningarskyldan á honum.
Hvert skal sækja og skila tilkynningum?
Eyðublöð til útfyllingar er hægt að fá í afgreiðslu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og hér á heimasíðu ráðuneytisins. Tilkynningunni skulu fylgja útskrift úr hlutafélagaskrá þar sem fram koma m.a. upplýsingar um tilgang félagsins og nöfn stjórnarmanna og endurskoðenda, samningur um greiðsluform og -tíma eiginfjárframlagsins, sé um slíkt að ræða og nýjasti ársreikningur eða síðasta milliuppgjör í íslenska félaginu.
Frekari upplýsingar gefa Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri og Þóra M. Hjaltested, lögfræðingur.
Eyðublað
Tilkynning um fjárfestingu erlends aðila í atvinnurekstri á Íslandi
