Almennt

Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

Ráðuneytið fer með málefni hugverkaréttinda á sviði iðnaðar. Þar undir falla einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum, reglum og alþjóðasamningum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar.

Einkaleyfastofan, sem efnahags- og viðskiptaráðherra ber stjórnsýslulega ábyrgð á, sér m.a. um skráningu hugverkaréttinda í iðnaði hér á landi. Jafnframt veitir hún veitir ráðgjöf og upplýsingar um réttindin og leitast við að auka almennan skilning á gildi þeirra til hagsbóta atvinnulífi og almenningi. Stofan hefur einnig, í nauðsynlegu samráði við ráðuneytið, samstarf við alþjóðastofnanir o. fl. á sviði hugverkaréttinda í iðnaði. Þar má nefna Norrænu einkaleyfastofuna (NTI) í Tåstrup og aðra norræna aðila, Evrópsku einkaleyfastofnunina í Münche( vegna samningsins um hugverkarétt í viðskiptum). Einnig má nefna samskipti við Evrópusambandið (ESB) og Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) á grundvelli EES-samningsins.

Stefnt er að því að Einkaleyfastofan sé framúrskarandi þjónustustofnun á sviði hugverkaréttinda í iðnaði. Starfsemin þar fer fram á grundvelli langtímaáætlana og ársáætlana og gefnar eru út ársskýrslur um starfsemina. Nánari upplýsingar má finna á vef stofnunarinnar.


Einkaleyfastofa

EPO





Þetta vefsvæði byggir á Eplica