Almennt

Samkeppnismál

1. Almennar upplýsingar

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið fer með stefnumótun á sviði samkeppnismála. Núgildandi samkeppnislög eru nr. 44/2005 og tóku þau gildi 1. júlí 2005 en áður höfðu gilt samkeppnislög nr. 8/1993.

Markmið samkeppnislaga er að efla virka samkeppni í viðskiptum og vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins. Lögin taka til hvers konar atvinnustarfsemi án tillits til þess hvort hún er rekin af einstaklingum, félögum, opinberum aðilum eða öðrum.

Efnahags- og viðskiptaráðherra fer með framkvæmd laganna en í umboði hans annast sérstök stofnun, Samkeppniseftirlitið, eftirlit samkvæmt lögunum og daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til.

Í lögunum er lagt bann við ólögmætu samráði fyrirtækja og misnotkun á markaðsráðandi stöðu, ásamt því að ákveðin skilyrði eru sett fyrir samrunum fyrirtækja.

2. Evrópskar samkeppnisreglur

Regluverk ESB á sviði samkeppni leggur bann við ólögmætu samráði fyrirtækja og misnotkun á markaðsráðandi stöðu, ásamt því að setja ákveðin skilyrði fyrir samrunum fyrirtækja, en meginreglur þessar er að finna í 53. – 64. gr. EES-samningsins.

Samkeppnisreglum EES-samningsins er aðeins beitt þegar samningar og ákvarðanir fyrirtækja á EES-svæðinu geta haft bein eða óbein áhrif á viðskipti milli ríkja. Samkeppnisreglur EES-samningsins gilda því samhliða hinum íslensku samkeppnislögum nr. 44/2005. Í þeim tilvikum þar sem reynir á samkeppnisreglur EES-samningsins er þeim beitt af Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), framkvæmdastjórn ESB og Samkeppniseftirlitinu. Ákvæði um verkaskiptingu milli ESA og framkvæmdastjórnarinnar er að finna í 56. og 57. gr. EES-samningsins.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica