Stofnanir
Stofnanir
![]() |
SamkeppniseftirlitiðBorgartún 26, 105 Reykjavík, sími 585 0700, bréfsími 585 0701, |
|---|
Samkeppniseftirlitið annast framkvæmd samkeppnislaga.
Í hlutverki Samkeppniseftirlitsins felst nánar tiltekið eftirfarandi:
- að framfylgja boðum og bönnum samkeppnislaga og eftir atvikum 53. og 54. gr. EES-samningsins (Evrópskt efnahagssvæði) og leyfa undanþágur skv. samkeppnislögum,
- að ákveða aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja,
- að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum,
- að fylgjast með þróun á samkeppnis- og viðskiptaháttum á einstökum mörkuðum í íslensku viðskiptalífi og kanna stjórnunar- og eignatengsl milli fyrirtækja.
Fyrir gildistöku laga nr. 44/2005 fóru samkeppnisyfirvöld einnig með eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Neytendastofa fer nú með þau verkefni, sbr. lög nr. 57/2005, um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.

