Almennt

Verslun og viðskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur yfirstjórn með stefnumótun og löggjöf um almenn viðskiptamál,kauparétt (lausafjárkaup, neytendakaup, þjónustukaup, fasteignakaup) þjónustuviðskipti, samningarétt, fyrningu og vexti og verðtryggingu.

Almennt um verslunarleyfi

Lög um verslunaratvinnu nr. 28/1998 taka til verslunar í atvinnuskyni. Óheimilt er að hefja verslun nema að atvinnureksturinn sé skráður í firmaská (einstaklingsfyrirtæki, sameignarfélög, samvinnufélög) eða hlutafélagaskrá (hlutafélög, einkahlutafélög). Að öðru leyti fer um verslunaratvinnu samkvæmt ákvæðum þeirra laga sem kunna að varða starfsemina á hverjum tíma. Nánari upplýsingar um lög nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, veitir sýslumaður í hverju umdæmi.

Verslun með notuð ökutæki

Ákvæði um sölu notaðra ökutækja eru í IV. kafla laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu. Til að reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki er nauðsynlegt að hafa sérstakt leyfi sýslumanns í umdæmi þar sem föst starfsstöð bifreiðasala er. Til að einstaklingar eða lögaðilar geti öðlast leyfið skulu þeir uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Hafa búsetu á Íslandi. Skilyrði um búsetu á þó ekki við um ríkisborgara og lögaðila annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga og lögaðila í Færeyjum
  2. Einstaklingar sem sækja um leyfið skulu hafa náð tuttugu ára aldri,
  3. Einstaklingar sem sækja um leyfið skulu vera lögráða og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og lögum um sölu notaðra ökutækja,
  4. Umsækjendur skulu hafa forræði á búi sínu
  5. Umsækjendur skulu leggja fram sönnun þess að þeir hafi tekið ábyrgðatryggingu hjá vátryggingafélagi sem hefur heimild til að veita þjónustu á Íslandi, aflað sér bankatryggingar eða lagt fram aðrar tryggingar sem ráðherra metur gildar og bæta viðskiptamönnum tjón er þeir kunna að baka þeim með störfum sínum sem bifreiðasalar.
  6. Umsækjendur skulu hafa sótt námskeið og lokið þar prófi samkvæmt prófkröfum sem settar eru í reglugerð nr. 45/2003 um námskeið og próf til að öðlast leyfi til sölu notaðra ökutækja.

Ef umsækjandi er lögaðili þarf meirihluti stjórnarmanna að fullnægja skilyrðum í 1. – 4. lið hér að framan. Nánari upplýsingar um leyfi til sölu notaðra ökutækja veitir sýslumaður í því umdæmi þar sem föst starfsstöð bifreiðasala er.

Kauparéttur

Með kauparétti er almennt átt við þær réttarreglur sem beitt er við kaup og þau réttaráhrif sem leiðir af umræddum réttarreglum. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið fer með stefnumótum löggjafar sem lýtur að kauparétti s.s. lög um lausafjárkaup, lög um þjónustukaup, lög um neytendakaup, lög um fasteignakaup. o.fl.

Samningaréttur

Með samningarétti er almennt átt við þær réttarreglur sem gilda almennt um samninga. Samkvæmt íslenskum lögum eru samningar almennt ekki formbundnir, þ.e. munnlegir samningar eru jafngildir skriflegum. Í lögum nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, er að finna almenn ákvæði um samninga og löggerninga en tekið er fram í I. kafla laganna að ákvæði þeirra gildi ekki um löggerninga á sviði persónuréttar, sifjaréttar eða erfðaréttar.

Fyrning

Fyrning er í því fólgin að réttur sem ekki hefur verið beitt með ákveðnum hætti í tiltekinn tíma fellur niður. Um fyrningu kröfuréttinda gilda lög nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda.

Vextir og verðtrygging

Lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu gilda um vexti af peningakröfum á sviði fjármunaréttar og á öðrum sviðum réttarins, eftir því sem við getur átt, svo og um annað endurgjald sem áskilið er eða tekið fyrir lánveitingu eða umlíðun skuldar. Lögin gilda einnig um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica