Efnahags- og viðskiptaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Prófnefndir

Prófnefnd verðbréfaviðskipta - Próf í verðbréfaviðskiptum

Auglýsing - Próf í verðbréfaviðskiptum 2011-2012


  • Prófgjald er kr. 16.500 fyrir hvert próf
  • Skráning í prófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans www.opnihaskolinn.is
  • Próftakar verða að hafa skráð sig og greitt prófgjald minnst einni viku fyrir sérhvert próf.

Prófefnislýsing, 14. útgáfa ( ágúst 2011)


Próf í verðbréfaviðskiptum:

Prófnefnd verðbréfaviðskipta hefur umsjón með prófi í verðbréfaviðskiptum samkvæmt 53. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Próf skulu að jafnaði haldin eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs. Starfsmenn sem hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga skulu hafa staðist próf í verðbréfaviðskiptum. Ráðherra ákveður prófgjöld og skal greiða þau fyrir þau tímamörk sem prófnefnd ákveður. Um próf í verðbréfaviðskiptum gildir reglugerð nr. 633/2003, með áorðnum breytingum.

Skipan prófnefndar:

Efnahags- og viðskiptaráðherra skipar prófnefnd verðbréfaviðskipta til fjögurra ára. Í nefndinni eiga sæti fimm menn. Tveir nefndarmenn skulu tilnefndir af samstarfsnefnd háskólastigsins, sbr. lög um háskóla, þar af skal annar vera í fullu og föstu starfi hjá viðskiptadeild háskóla sem hefur leyfi til að útskrifa viðskiptafræðinga og hinn vera í fullu og föstu starfi hjá lagadeild háskóla sem hefur leyfi til að útskrifa lögfræðinga sem njóta undanþágu frá I. hluta prófs í verðbréfaviðskiptum. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af Samtökum fjármálafyrirtækja og einn sameiginlega af kauphöll og skipulegum verðbréfamörkuðum skv. lögum um kauphallir. Loks skal einn skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn eru skipaðir með sama hætti.

Prófnefnd verðbréfaviðskipta skipa nú:

  • Erna Jónsdóttir, lögfræðingur, efnahags- og viðskiptaráðuneyti, formaður
  •  Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Jón Snorri Snorrason, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Kristjana Sigurðardóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja
  • Guðríður Ásgeirsdóttir, tilnefnd af Kauphöll Íslands og skipulögðum verðbréfamörkuðum

Varamenn eru:

  • Aðalsteinn E. Jónasson, lektor, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Helgi Sigurðsson, hrl., tilnefndur af Samtökum fjármálafyrirtækja
  • Kristín Rafnar, tilnefnd af Kauphöll Íslands og skipulögðum verðbréfamörkuðum

Starfsmaður prófnefndar er Ólöf Stefánsdóttir, efnahags- og viðskiptaráðuneyti.

Heimilis- og netfang prófnefndar verðbréfaviðskipta:

Prófnefnd verðbréfaviðskipta

c/o Efnahags- og viðskiptaráðuneyti

Skuggasundi 3

150 Reykjavík

profnefnd@evr.is

Helstu verkefni prófnefndar verðbréfaviðskipta:

  • Prófnefnd sér um að halda próf í verðbréfaviðskiptum a.m.k. einu sinni á ári.
  • Prófnefnd er heimilt að semja við utanaðkomandi aðila um framkvæmd prófa. Á hendi framkvæmdaraðila verðbréfaviðskiptaprófs er m.a. að annast skráningu í próf, innheimtu prófgjalda, útvegun húsnæðis vegna prófahalds, tilkynningar og upplýsingagjöf til próftaka vegna prófahalds, sending einkunna til próftaka og umsjón með prófsýningum í samráði við prófnefnd.
  • Prófnefnd er jafnframt heimilt að semja sérstaklega við óháða aðila um gerð og yfirferð prófa, en prófnefnd staðfestir að próftaki hafi staðist verðbréfaviðskiptapróf.
  • Prófnefnd tekur ákvörðun um efni sem prófað er úr og gefur út prófsefnislýsingu, sem birt er á vefsíðu prófnefndar.
  • Prófnefnd ákveður fjölda prófa og skulu þau að jafnaði vera skrifleg.
  • Prófnefnd getur veitt undanþágur frá töku prófa á tilteknum forsendum, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 633/2003.

Nánar um verðbréfaviðskiptapróf:

Próf í verðbréfaviðskiptum skiptist í þrjá hluta: I. hluta (almenna lögfræði), II. hluta (almenna viðskiptafræði) og III. hluta (fjármagnsmarkaðinn). Próf eru haldin á tímabilinu nóvember til maí og á haustin í ágúst-september, ef tilskilinn fjöldi þátttakenda hefur skráð sig í próf (a.m.k. 10 manns). Einkunnir á prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0-10. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0.

Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum er hann hefur þreytt og skal próftaki hafa lokið öllum nauðsynlegum prófum með fullnægjandi árangri innan þriggja ára frá því að hann tók fyrsta prófið. Meðaleinkunn (lokaeinkunn) er gefin með tveimur aukastöfum.

Leyfileg hjálpargögn:

Kveðið er á um leyfileg hjálpargögn í prófsefnislýsingu.

Af gefnu tilefni skal eftirfarandi komið á framfæri að því er varðar lög og reglugerðir. Heimildin nær til eftirfarandi gagna :

  1. Lagasafns útgefnu af dóms- og kirkjumálaráðuneyti.
  2. A- og B-deilda Stjórnartíðinda.
  3. Útprentaðra laga af www.althingi.is.
  4. Útprentaðra reglugerða af www.stjr.is.

Í leyfilegum hjálpargögnum eru heimilar einfaldar yfir- og undirstrikanir ásamt leiðréttingum á lagatexta. Leiðréttingar greini einvörðungu tilvísanir til númers og heitis nýrra laga. Annars konar tákn eða merkingar er óheimilt að nota, að undanskildum bréfaklemmum og límmiðum. Ekki er heimilt að hafa meðferðis önnur skjöl eða milliblöð; s.s. heimatilbúin efnisyfirlit eða þvíumlíkt.

Verði próftaki uppvís af því að nota óleyfileg gögn, mun honum umsvifalaust verða vikið úr prófi og missir hann rétt til próftöku. Prófnefnd leggur áherslu á að eftirlit með hjálpargögnum á prófstað sé mjög öflugt.

Prófsýningar:

Próftaki á rétt á að sjá prófúrlausn sína ef hann æskir þess innan fimmtán daga frá birtingu einkunnar. Framkvæmdaraðili prófs í verðbréfaviðskiptum hverju sinni annast skráningu á prófsýningar og skipuleggur þær í samráði við prófnefnd verðbréfaviðskipta.

Próftaka er heimilt að skjóta mati á úrlausn til prófnefndar til endurmats innan tveggja mánaða frá birtingu einkunnar. Prófnefnd getur skipað prófdómara til að endurskoða úrlausn próftaka á ábyrgð nefndarinnar.

Nánar um undanþágur frá töku prófa (sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 633/2003):

a)         Próf í lögfræði sem metið er fullnægjandi að lögum til að öðlast héraðsdómslögmannsréttindi.

Þeir sem lokið hafa prófi í lögfræði sem metið er fullnægjandi að lögum til að öðlast héraðsdómslögmannsréttindi, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998, eru undanþegnir töku prófa í I. hluta. Þ.e. þeir sem lokið hafa fullnaðarprófi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi við lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla.

► Sýna þarf fram á að próftaki uppfylli skilyrði til undanþágu frá próftöku á þessum grundvelli. Í því skyni skal afhenda framkvæmdaraðila prófs í verðbréfaviðskiptum afrit af prófskírteini, áður en til útskriftar kemur.

► Ekki þarf að sækja formlega um undanþágu hjá prófnefnd.

b)         Réttur að lögum til að kalla sig viðskiptafræðing eða hagfræðing.

Þeir sem hafa rétt að lögum til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga eru undanþegnir töku prófa í II. hluta. Sækja þarf um slíkt leyfi hjá viðskiptaráðherra samkvæmt lögum nr. 27/1981 um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga. Þeir sem lokið hafa BS- eða cand.oecon.-prófi úr viðskiptadeild eða BS-prófi úr hagfræðideild viðurkennds íslensks háskóla eða meistaranámi úr framangreindum deildum hafa þó sjálfkrafa rétt til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga, sbr. 1. gr. laga nr. 27/1981.

► Sýna þarf fram á að próftaki uppfylli skilyrði til undanþágu frá próftöku á þessum grundvelli. Í því skyni skal afhenda framkvæmdaraðila prófs í verðbréfaviðskiptum afrit af prófskírteini eða leyfi viðskiptaráðherra til að mega kalla sig viðskipta- eða hagfræðing, áður en til útskriftar kemur.

► Ekki þarf að sækja formlega um undanþágu hjá prófnefnd.

c)         Prófnefnd getur veitt undanþágu frá töku prófa í einstökum greinum ef próftaki sýnir fram á það með fullnægjandi hætti, að mati prófnefndar, að hann hafi staðist sambærileg próf á háskólastigi.

Prófnefnd getur veitt próftaka sem um það sækir undanþágu frá því að þreyta próf í einstökum greinum í I. og II. hluta. Skilyrði þess að slíka undanþágu megi veita er að próftaki sýni fram á það með fullnægjandi hætti að hann hafi staðist sambærileg próf á háskólastigi að mati prófnefndar, þ.e. með vottorði frá hlutaðeigandi menntastofnun og öðrum þeim gögnum sem prófnefnd kann að óska eftir. Það athugast að ekki eru veittar undanþágur frá prófum í III. hluta prófs í verðbréfaviðskiptum.

► Sækja þarf formlega um undanþágu hjá prófnefnd verðbréfaviðskipta.

► Staðlað eyðublað (umsókn um undanþágu frá próftöku) er að finna á vefsíðu prófnefndar.

► Útfyllt eyðublað, ásamt fylgigögnum, skal sent prófnefnd með tölvupósti eða hefðbundnum pósti.

► Prófnefnd er heimilt að vísa umsókn frá berist hún síðar en einum mánuði fyrir próf sem óskað er undanþágu frá.

► Það athugast að prófnefnd verðbréfaviðskipta fundar að jafnaði einu sinni í mánuði.

d)         Þeir sem lokið hafa prófi á Evrópska efnahagssvæðinu sem krafist er í viðkomandi ríki til að  vera heimilt að hafa umsjón með daglegri starfsemi í tenglsum við viðskipti með fjármálagerninga þurfa einungis að taka próf í lögum og reglum á fjármagnsmarkaði í III. hluta, sbr. 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum.

► Sýna þarf fram á að próftaki uppfylli skilyrði til undanþágu frá próftöku á þessum grundvelli.

► Erindi vegna undanþágu frá töku prófa á þessum grundvelli skal beint til prófnefndar verðbréfaviðskipta ásamt nauðsynlegum fylgigögnum og staðfestingum.

Námskeiðahald:

Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs. Ekki er gerð krafa um að próftakar sitji námskeið til undirbúnings prófi í verðbréfaviðskiptum, en háskólastofnanir bjóða reglulega upp á slík námskeið.

Opni háskólinn við Háskólann í Reykjavík býður upp á námskeið til undirbúnings prófi í verðbréfaviðskiptum veturinn 2009-10 og annast jafnfram framkvæmd verðbréfaviðskiptaprófs.

Upplýsingar og skráning í próf fara fram á heimasíðu Opna háskólans, www.opnihaskolinn.is/fagmennt.

Prófefnislýsing, 14. útgáfa ( ágúst 2011)

Beiðni um undanþágu frá próftöku

Listi yfir þá sem lokið hafa prófi í verðbréfaviðskiptum

Gömul próf

Lög um fjármálafyrirtæki

Reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum

Reglugerð nr. 521/2007 um breytingu á reglugerð nr. 633/2003

Minnispunktar um þinglýsingar (Halldór Jónsson)

Nokkur almenn atriði um veðrétt (Halldór Jónsson)

Stutt kynning á helstu réttarheimildum íslensks réttar, vægi þeirra og samspili (Andri Árnason)




Flokkar nefnda

  • Allar nefndir
  • Á vegum Alþingis
  • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
  • Samningbundnar stjórnir og nefndir
  • Tímabundin verkefni
  • Nefndir utan ráðuneyta
  • Erlent samstarf
  • Eftirlitsnefndir
  • Prófnefndir
  • Úrskurðarnefndir

Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Nefndir > Prófnefndir

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

  • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
  • Efnahagsmál
  • Erlent samstarf
  • Fasteignasalar
  • Félagaréttur
  • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
  • Fjármálamarkaður
  • Gjaldeyrismál
  • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
  • Rafræn viðskipti
  • Samkeppnismál
  • Vátryggingar
  • Verðbréfaviðskipti
  • Verslun og viðskipti
  • Nefndir
    • Allar nefndir
    • Á vegum Alþingis
    • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
    • Samningbundnar stjórnir og nefndir
    • Tímabundin verkefni
    • Nefndir utan ráðuneyta
    • Erlent samstarf
    • Eftirlitsnefndir
    • Prófnefndir
    • Úrskurðarnefndir
  • Leyfisveitingar
  • Eyðublöð
  • Stofnanir

Vottun um aðgengi vefsíðu - forgangur A

www.vidskiptaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
    • Erlent samstarf
    • Nefndir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Leyfisveitingar
    • Eyðublöð
    • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Öll verkefni ...
  • Útgefið efni
    • Fréttatilkynningar
    • Skýrslur og greinagerðir
    • RSS-þjónusta
  • Lög og reglugerðir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Fjárfesting erl. aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Gjaldeyrismál o.fl.
    • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

    • Allir flokkar...

Samskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið - Skuggasundi 3 - 150 Reykjavík (Sjá kort)
Sími 545 8800 - Bréfasími 511 1161 - Kt.: 700269-7369 - Netfang: postur@evr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna - Ritstjórn

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica