Afgreiðsla
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti
Skuggasundi 3
150 Reykjavík
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
Skuggasundi 3
150 Reykjavík
Tölvupóstfang: postur hjá evr.is
(ATH. Þarf að setja @ í stað hjá.)
Sími: 545 8800
Bréfasími: 511 1161
Almennur afgreiðslutími ráðuneytisins er
virka daga frá kl. 08:30 - 16:00.
Nánar um staðsetningu ráðuneytis á vef Stjórnarráðs Íslands.
Hlutverk efnahags- og viðskiptaráðuneytis
Ráðuneytið starfar skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og fer með mál er varða:
A. Hagstjórn, þar á meðal:
- Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og gerð þjóðhagsspár.
- Efnahagsáætlanir og samstillingu opinberrar hagstjórnar.
- Eftirfylgni við efnahagsstefnu ríkisstjórnar.
- Kynningu á efnahags- og hagstjórnarmálum innan lands og utan.
- Vexti og verðtryggingu.
- Fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri.
- Málefni Seðlabanka Íslands.
- Málefni Hagstofu Íslands.
B. Fjármálamarkaðinn, þar á meðal:
- Fjármálafyrirtæki.
- Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.
- Málefni verðbréfamarkaða.
- Lögeyri, gjaldeyri og fjármagnshreyfingar milli landa.
- Greiðslukerfi og greiðsluþjónustu.
- Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
- Neytendalán og fjarsölu á fjármálaþjónustu.
- Innstæðutryggingar og málefni Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
- Opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
- Málefni Fjármálaeftirlitsins.
- Úrskurðar- og eftirlitsnefnd með sértækri skuldaaðlögun.
C. Félagarétt, endurskoðendur og ársreikninga, þar á meðal:
- Hlutafélög, einkahlutafélög, opinber hlutafélög, samvinnufélög, sameignarfélög, samlagsfélög, Evrópufélög, evrópsk samvinnufélög, evrópsk fjárhagsleg hagsmunafélög og sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, þó ekki skráningu þeirra.
- Endurskoðendur og endurskoðendaráð.
- Bókhald og ársreikninga.
D. Almenn viðskiptamál, þar á meðal:
- Samningarétt.
- Löggildingu viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
- Fyrningu.
- Ábyrgðarmenn.
- Viðskiptabréf.
- Innheimtu.
- Rafræn viðskipti, aðra rafræna þjónusta og rafrænar undirskriftir.
- Kauparétt: lausafjárkaup, fasteignakaup, neytendakaup og þjónustukaup.
- Sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.
- Verslanaskrár, firmu og prókúruumboð.
- Verslunaratvinnu og viðskipti með vöru og þjónustu, aðra en útflutningsverslun.
- Þjónustuviðskipti.
- Umboðsviðskipti.
- Innflutning.
- Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, þ.m.t. einkaleyfi, vörumerki, félagamerki, uppfinningar starfsmanna og hönnun. Nr. 125 28. september 2011
- Faggildingu.
- Samkeppnismál.
- Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.
E. Önnur verkefni:
- Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).
- Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD).
- Skipun fulltrúa Íslands í stjórn aðstoðarsjóð Efnahags- og framfarastofnunarinnar, sbr. lög nr. 25/1976.
