Samkeppniseftirlitið heimilar samræmd greiðsluerfiðleikaúrræði
Samkeppniseftirlitið hefur í dag veitt viðskiptabönkum, sparisjóðum, lífeyrissjóðum og Íbúðalánasjóði heimild til að beita samræmdum greiðsluerfiðleikaúrræðum vegna einstaklinga með fasteignaveðlán. Ákvörðunin lýtur annars vegar að samkomulagi fyrirtækja á fjármálamarkaði, félags- og tryggingarmálaráðuneytis og viðskiptaráðuneytis, um samræmda beitingu greiðsluerfiðleikaúrræða, frá 3. apríl sl., og hins vegar samkomulagi um beitingu greiðslujöfnunar gengistryggða fasteignaveðlána til einstaklinga, frá 8. apríl sl.
Í ákvörðuninni kemur fram forsendur séu til þess að veita heimild til umrædds samstarfs þar sem samningarnir séu til verulegs hagræðis fyrir skuldara og jafnvel kröfuhafa eins og á stendur. Þýðingu hefur í þessu sambandi að samningarnir eru uppsegjanlegir og tímabundnir og hindra ekki keppinauta í að beita frekari úrræðum viðskiptavinum til hagsbóta. Því eru samningarnir heimilaðir með vísan í 15. gr. samkeppnislaga.
Til að vernda samkeppni og vinna gegn frekari samræmingu viðskiptaskilmála sem gætu skaðað neytendur og atvinnulíf er mælt fyrir um sérstaka upplýsingagjöf til Samkeppniseftirlitsins um viðskiptaskilmála einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði sem aðilar eru að samkomulaginu. Þá er því beint til umboðsmanna viðskiptavina sem skipaðir hafa verið hjá ríkisbönkunum þremur að þeir stuðli að því að viðkomandi bankar starfi í samræmi við ákvörðunina.
Úrskurð Samkeppniseftirlitsins má finna hér.
24. apríl 2009
