Haustpróf í verðbréfaviðskiptum 2009
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir haustprófum í verðbréfaviðskiptum sem hér segir:
Próf úr I. hluta
17. ágúst 2009 Íslensk réttarskipun og Evrópuréttur, Ábyrgðir, Ágrip úr réttarfari.
18. ágúst 2009 Viðfangsefni úr fjármunarétti, Félagaréttur.
19. ágúst 2009 Viðskiptabréfareglur, Veðréttindi, Þinglýsingar
Próf úr II. hluta
20. ágúst 2009 Grunnatriði í fjármálafræðum.
24. ágúst 2009 Greining ársreikninga.
31. ágúst 2009 Þjóðhagfræði.
Próf úr III. hluta
25. ágúst 2009 Lög og reglur um fjármagnsmarkaðinn.
26. ágúst 2009 Markaðsviðskipti og viðskiptahættir.
27. ágúst 2009 Helstu tegundir verðbréfa og gjaldeyrir: Hlutabréf, Skuldabréf, Afleiður og gjaldeyrir.
28. ágúst 2009 Fjárfestingarferli: Samval verðbréfa og sjóðastýring, Ráðgjöf og skattamál.
Próftími er 4 klukkustundir og tímasetning hvers prófs er 09:00-13:00.
Prófsefni greinir í prófsefnislýsingu prófnefndar verðbréfaviðskipta. Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í einstaka prófum. Prófsefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði prófnefndar verðbréfaviðskipta á heimasíðu viðskiptaráðuneytis:
Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum.
Haustprófin verða haldin í húsakynnum á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands, framkvæmdaraðila verðbréfaviðskiptaprófs veturinn 2008-2009.
Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0.
Skráning í haustprófin fer fram á vefsíðu Endurmenntunar Háskóla Íslands, www.endurmenntun.is.
Skráningu í haustpróf lýkur 28. júní 2009, og verður greiðsla prófgjalds að hafa farið fram fyrir þann dag.
Prófgjald vegna haustprófa er kr. 14.800 fyrir hvert próf. Vakin er athygli á að haustpróf verða ekki haldin nema að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. Ef ekki fæst nægur fjöldi í próf verður prófgjald endurgreitt. Tilkynning um haldin og felld haustpróf verður send út til skráðra próftaka þann 1. júlí 2009.
Reykjavík, 16. maí 2009
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
