Áhugavert efni

Haustpróf í verðbréfaviðskiptum 2010

18.5.2010

Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir haustprófum í verðbréfaviðskiptum sem hér segir:

Próf úr I. hluta

16. ágúst 2010    Íslensk réttarskipun og Evrópuréttur, Ábyrgðir, Ágrip úr réttarfari.
17. ágúst 2010    Viðfangsefni úr fjármunarétti, Félagaréttur.
18. ágúst 2010    Viðskiptabréfareglur, Veðréttindi, Þinglýsingar

Próf úr II. hluta

19. ágúst 2010    Grunnatriði í fjármálafræðum.
20. ágúst 2010    Þjóðhagfræði.
23. ágúst 2010    Greining ársreikninga.

Próf úr III. hluta
24. ágúst 2010    Lög og reglur um fjármagnsmarkaðinn.
25. ágúst 2010    Markaðsviðskipti og viðskiptahættir.
26. ágúst 2010    Helstu tegundir verðbréfa og gjaldeyrir: Hlutabréf, Skuldabréf, Afleiður og gjaldeyrir.
27. ágúst 2010    Fjárfestingarferli: Samval verðbréfa og sjóðastýring, Ráðgjöf og skattamál.

Próftími er 4 klukkustundir og tímasetning hvers prófs er 16:30-20:30.

Prófsefni greinir í prófsefnislýsingu prófnefndar verðbréfaviðskipta. Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í einstaka prófum. Prófsefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði prófnefndar verðbréfaviðskipta á heimasíðu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins.

Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. 

Haustprófin verða haldin í húsakynnum á vegum Háskólans í Reykjavík, framkvæmdaraðila verðbréfaviðskiptaprófs veturinn 2009-2010. Ef skráðir próftakar ná lágmarksfjölda, 10 manns í hvert próf, en eru færri en 50 munu prófin fara fram í tölvuveri.

Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0.

Skráning í haustprófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans í HR

Skráningu í haustpróf lýkur 28. júní 2010. Greiðsla prófgjalds verður að hafa farið fram þann 5. júlí 2010.

Prófgjald vegna haustprófa er kr. 18.000 fyrir hvert próf. Vakin er athygli á að haustpróf verða ekki haldin nema að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. Ef ekki fæst nægur fjöldi í próf verður prófgjald endurgreitt. Tilkynning um haldin og felld haustpróf verður send út til skráðra próftaka þann 29. júní 2010.

Reykjavík, 15. maí 2010.

Prófnefnd verðbréfaviðskipta

Þetta vefsvæði byggir á Eplica