Straumhvörf á fjármálamarkaði - eftirlit, aðhald og ábyrgð
Morgunfundur á vegum efnahags- og viðskiptaráðuneytisins
29. janúar 2010 kl. 8:00 – 10:00
Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins
Undanfarna mánuði hafa stjórnvöld unnið að því að bæta regluverk fjármálamarkaðar og endurmeta hlutverk eftirlitsaðila. Á föstudag mælir efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir frumvarpi til laga þar sem brugðist er við þeim ábendingum sem fram hafa komið um auknar valdheimildir eftirlitsaðila, ábyrgð stjórnenda fjármálafyrirtækja og virkari takmarkanir á áhættu og hagsmunatengslum. Á þessum morgunfundi ráðuneytisins er ætlunin að kynna nýtt regluverk á fjármálamarkaði, hlutverk eftirlitsstofnana, Seðlabanka, Bankasýslu og annarra aðila sem gæta hagsmuna almennings í þessum mikilvæga málaflokki.
8:00 Húsið opnar
8:15 Endurbætur á regluverki og eftirliti með fjármálastarfsemi
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra
8:30 Framfaraskref
Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans
8:45 Ný verkefni – nýjar áherslur í eftirliti með fjármálastarfsemi
Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
9:00 Uppbygging fjármálamarkaðar og atvinnulífs á forsendum samkeppni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
9:15 Framkvæmd eigendastefnu ríkisins
Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins
9:30 Eftirlit með skuldaaðlögun einstaklinga og fyrirtækja
María Thjell, formaður eftirlitsnefndar um sértæka skuldaaðlögun
9:45 Krafan um jafnræði, gegnsæi og sanngirni
Brynhildur Georgsdóttir, umboðsmaður viðskiptavina Arion banka
10:00 Fundi slitið
Fundurinn er öllum opinn.
