Styrkir

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um styrki.

Í fjárlögum 2010 undir efnahags- og viðskiptaráðuneytinu er fjárlagaliður sem nefnist „ráðstöfunarfé ráðherra“.

Ráðherra hefur ákveðið að veita styrki tvisvar á ári vegna vinnslu ritgerðar eða rannsóknarverkefnis. Styrkurinn gæti numið allt að kr. 500.000.  Umsækjendur þurfa að hafa lokið fyrstu háskólagráðu. 

Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að í forgangi séu þær ritgerðir eða rannsóknarverkefni sem tengjast efnahagshruninu. Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2010 fyrir úthlutun í fyrsta áfanga. Öllum umsækjendum verður svarað eigi síðar en 30. júní 2010. Umsækjendum er bent á að kynna sér málefnaflokka ráðuneytisins og reglur um úthlutun styrkja á heimasíðu þess http://www.evr.is.  Umsækjendur skulu senda umsókn til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík eða á netfangið postur@evr.is.

Í umsókn skal eftirfarandi koma fram:

A.  Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang og upplýsingar um bankareikning.
B.  Verklýsing.
C.  Markmið, umfang og afurð verkefnis.
D.  Kostnaðaráætlun og fjármögnun.
E.  Fjárhæð styrks sem sótt er um.

Nánari upplýsingar veitir Helga Óskarsdóttir rekstrarstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í síma 5458800.



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica