Reglur um styrkveitingar
1. Almennt
Í fjárlögum 2011 undir efnahags- og viðskiptaráðuneytinu er fjárlagaliður sem nefnist „ráðstöfunarfé ráðherra“.
Settar hafa verið eftirfarandi reglur er kveða á um málsmeðferð við úthlutun fjárins. Reglurnar eru birtar á heimasíðu viðskiptaráðuneytisins.
2. Umsóknir
Umsækjendur skulu senda umsóknir til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, Skuggasundi 3, 150 Reykjavík eða á netfangið postur@evr.is
2.1. Form umsókna
Ekki er gerð krafa um tiltekið form umsókna.
2.2. Efni umsókna
Í umsókn um styrk skal a.m.k. eftirfarandi koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang og upplýsingar um bankareikning.
- Verklýsing.
- Markmið, umfang og afurð verkefnis.
- Kostnaðaráætlun og fjármögnun.
- Fjárhæð styrks sem sótt er um.
3. Verklag og afgreiðsla umsókna
Þegar umsókn berst fer hún á skjalasafn til skráningar en sérhver styrkumsókn verður að sérstöku máli í málaskrá ráðuneytisins. Rekstrarstjóri er ábyrgðarmaður máls.
Umsóknir þurfa að heyra undir verksvið ráðuneytisins. Ábyrgðarmaður máls metur hvort þetta skilyrði sé uppfyllt. Við matið skal litið til skipurits ráðuneytisins og þeirra málaflokka er heyra undir hvert svið.
Umsóknir skulu metnar á grundvelli eftirfarandi þátta:
- Hvort umsókn falli undir verksvið efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Ef ekki, skal umsókn hafnað, skriflega, að höfðu samráði við ráðuneytisstjóra.
- Verklýsinga, markmiða og kostnaðaráætlana, sbr. liður 2.2. hér að framan.
Sé umsókn ábótavant um einhvern framangreindra þátta skal ábyrgðarmaður máls, svo fljótt sem unnt er, tilkynna styrkbeiðanda um það skriflega. Skal leiðbeint um hvaða gögn eða upplýsingar skorti. Tiltaka skal skamman frest til úrbóta á styrkumsókn.
Hafi ábyrgðarmaður máls metið umsókn þannig að hún falli undir verksvið ráðuneytisins skal hann ásamt aðstoðarmanni ráðherra og ráðuneytisstjóra fara yfir þær umsóknir. Í kjölfarið eru umsóknir lagðar fyrir ráðherra til ákvörðunar.
4. Annað
Hvorki eru veittir styrkir vegna ferðakostnaðar né uppihalds.
