Starfssvið
Afgreiðsla
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
Sölvhólsgata 7
150 Reykjavík
Tölvupóstfang: postur hjá evr.is
(ATH. Þarf að setja @ í stað hjá.)
Sími: 545 8800
Bréfasími: 511 1161
Almennur afgreiðslutími ráðuneytisins er virka daga frá kl. 08:30 - 16:00.
Hlutverk efnahags- og viðskiptaráðuneytis
- Samkvæmt 13. gr. reglugerðar nr. 177/2007 sem breytt var með 7. gr reglugerðar nr. 101/2009 fer efnahags- og viðskiptaráðuneytið með mál er varða:
- Verslun og viðskipti með vöru og þjónustu, aðra en útflutningsverslun.
- Fjármálamarkað. Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.
- Vexti og verðtryggingu.
- Fjárfestingar erlendra aðila. Gjaldeyri.
- Samkeppnismál og óréttmæta viðskiptahætti.
- Hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög og önnur félög og sjálfseignarstofnanir, sem stunda atvinnurekstur, þó ekki skráningu þeirra. Firmu.
- Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD).
- Fasteignakaup og sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.
- Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, m.a. einkaleyfi, vörumerki og hönnun.
- Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).
- Hagstjórn almennt.
- Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum.
- Hagstofu Íslands.
- Endurskoðendur og framkvæmd bókhalds- og ársreikningalaga.
