Árangursstjórnunarsamningur við Samkeppnisstofnun

Viðskiptaráðuneyti og Samkeppnisstofnun gera með sér svofellt samkomulag


I. Tilgangur
Með samkomulagi þessu er kveðið á um gagnkvæmar skyldur viðskiptaráðuneytis og Samkeppnisstofnunar við útfærslu á lögbundnu hlutverki stofnunarinnar. Samkomulagið festir í sessi ákveðið samskiptaferli milli ráðuneytis og stofnunar ásamt því að leggja grunn að áætlanagerð og mati á árangri af starfsemi hennar. Með áætlunum, sem samkomulagið kveður á um, er mótuð stefna til næstu ára. Árangur af starfseminni skal koma fram í ársskýrslu með samanburði við upphafleg markmið.

II. Hlutverk
Samkeppnisstofnun starfar samkvæmt samkeppnislögum nr. 8/1993, með síðari breytingum. Samkeppnisstofnun undirbýr mál sem lögð eru fyrir samkeppnisráð og ráðgjafanefndir þess og annast dagleg störf ráðsins. Stofnuninni er jafnframt heimilt að taka ákvarðanir til, bráðabirgða um einstök mál og getur samkeppnisráð falið Samkeppnisstofnun ákvörðunarvald sitt á afmörkuðum sviðum samkvæmt nánari reglum sem ráðið setur.
Hlutverk samkeppnisráðs er m.a. sem hér segir:

1. að framfylgja bannreglum samkeppnislaga,
2. að ákveða aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja og óréttmætum viðskiptaháttum,
3. að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra samkeppnisaðila að markaði,
4. að stuðla að auknu gagnsæi markaðarins,
5. að hafa eftirlit með greiðslukortastarfsemi,
6. að benda stjórnvöldum á ef ákvæði laga eru talin andstæð markmiði samkeppnislaga.

Auk þess að annast faglegan undirbúning og dagleg störf vegna framangreindra verkefna samkeppnisráðs eru Samkeppnisstofnun falin ýmis önnur verkefni, þ.á.m. eftirfarandi:

1. þátttaka í alþjóðlegu samstarfi m.a. norrænu samstarfi, undirbúningi og framkvæmd EES-reglna, aðstoð við framkvæmd samkeppnisreglna annarra ríkja í samræmi við gagnkvæmar skuldbindingar í milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að,
2. annast eftirlit með framkvæmd ýmissa sérlaga og reglna, svo sem laga um neytendalán, laga um alferðir o.fl.
3. málflutningur fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála og dómstólum.

III. Áherslur og markmið
Lögð skal áhersla á þekkingu og færni í starfsemi Samkeppnisstofnunar samhliða kröfu um árangur og skilvirkni. Samkeppnisstofnun skal í áætlunum sínum setja fram skýr markmið og leiðir að settu marki. Í áætlunum stofnunarinnar (sjá kafla V) skal lögð sérstök áhersla á eftirfarandi þætti:

· Samkeppnisstofnun skal taka upp mál að eigin frumkvæði þar sem hætta er á að samkeppnishindranir og óréttmætir viðskiptahættir séu til staðar og grípa til viðeigandi ráðstafana í framhaldi af því.
· Stofnunin skal sjá til þess að úrskurðir samkeppnisráðs, tilmæli eða leiðbeiningar verði aðgengilegir.
· Stofnunin skal halda skrá um eðli athugasemda eða kærumála sem stofnuninni berast.
· Stofnunin skal benda stjórnvöldum á leiðir sem efla samkeppni og auðvelda aðgang nýrra samkeppnisaðila að markaði ekki síst þar sem ríkið er fyrir á samkeppnismarkaði.
· Stofnunin skal koma á fót sérstökum hópi sérfræðinga til rannsókna á samkeppnismálum.
· Stofnunin skal fylgjast með þróun mála á alþjóðavettvangi og aðlaga stefnu og starfshætti að þróun þeirra mála.
· Stofnunin skal hafa skýra starfsmannastefnu þar sem m.a. er kveðið á um endurmenntun og þjálfun starfsmanna. Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum ber áfram að vinna að jafnri stöðu kynjanna innan stofnunarinnar.

IV. Starfsrammi
Ráðuneytið mun beita sér fyrir því að árleg fjárveiting til Samkeppnisstofnunar verði í samræmi við verkefni hennar og áherslur. Viðskiptaráðuneytið mun leitast við að tryggja fjárveitingu vegna kostnaðar við umfangsmikil samrunamál og þess viðbótarkostnaðar sem hlýst af þegar málum er vísað til almennra dómstóla. Samkeppnisstofnun ber að halda útgjöldum sínum innan fjárheimilda hvers árs.

Viðskiptaráðuneytið mun, í samráði við Samkeppnisstofnun, fela henni að annast ráðningar- og launamál starfsmanna sinna í samræmi við lög, reglur og kjarasamninga. Ferðalög á vegum stofnunarinnar eru á ábyrgð forstjóra án sérstakrar ferðaheimildar frá viðskiptaráðuneytinu. Ráðuneytið mun stuðla að því að Samkeppnisstofnun fái hagkvæmara húsnæði undir starfsemi sína á samningstímanum.

V. Gagnkvæmar skyldur
Neðangreindar áætlanir og ársskýrsla skulu móta samskipti ráðuneytisins og Samkeppnisstofnunar:

· Fyrir 23. október 1998 skal Samkeppnisstofnun leggja fram stefnumótun um helstu verkefni og áherslur til næstu 3-5 ára og skal hún endurnýjuð annað hvert ár í tengslum við ársáætlun.
· Ár hvert, eftir að fjárlagafrumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi, skal Samkeppnisstofnun hefja undirbúning að ársáætlun vegna starfsemi og reksturs komandi árs. Helstu niðurstöður og markmið ársáætlunar, þegar tekið hefur verið tillit til afgreiðslu fjárlaga og greiðslustöðu í upphafi árs, skulu lagðar fyrir ráðuneytið í mars ár hvert. Samhliða því skal leggja fram tillögur til fjárlaga fyrir næsta ár eigi síðar en 15. apríl.
· Í mars ár hvert skal í ársskýrslu gera grein fyrir árangri af starfi stofnunarinnar fyrir liðið ár með samanburði við sett markmið, í fyrsta sinn árið 1999.

Ráðuneytið skal innan 30 daga frá því að áætlun berst koma sjónarmiðum sínum á framfæri við stofnunina um áætlunina.

VI. Gildistími og endurskoðun
Samningurinn gildir frá 2. október 1998. Gildistími er fimm ár en hvor aðili um sig getur óskað eftir endurskoðun innan þess tíma. Vinna við endurnýjun samningsins skal hefjast a.m.k. þremur mánuðum áður en samningstímanum lýkur.

Reykjavík, 2. október 1998.Viðskiptaráðherra
Forstjóri Samkeppnisstofnunar





Þetta vefsvæði byggir á Eplica