Efnahags- og viðskiptaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki starfar samkvæmt samkomulagi á milli efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, Samtaka fjármálafyrirtækja og Neytendasamtakanna. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um ágreining viðskiptamanna við fjármálafyrirtæki, greiðslustofnanir og fyrirtæki í peninga- og verðmætasendingarþjónustu og dótturfélög þeirra, enda varði ágreiningurinn starfsleyfisskylda starfsemi fjármálafyrirtækisins samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Einnig fjallar nefndin um ágreining um yfirfærslur á milli viðskiptareikninga milli landa í samræmi við ákvæði laga um gjaldeyrismál.

Nefndin er vistuð hjá Fjármálaeftirlitinu, sem tekur við kvörtunum viðskiptamanna og sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.

Staðsetning og póstfang:

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki,
Höfðatúni 2,
105 Reykjavík

Upplýsingar og leiðbeiningar fyrir neytendur er í síma 520 3700

þriðjudaga kl. 10-11 og
fimmtudaga kl. 14-15

Tölvupóstur: urskfjarm@fme.is

Hverjir geta leitað til nefndarinnar?

Viðskiptamenn sem eru í samningssambandi við viðkomandi fjármálafyrirtæki, greiðslustofnun eða fyrirtæki í peninga- og verðmætasendingarþjónustu geta snúið sér til nefndarinnar. Þau fyrirtæki sem eiga aðild að nefndinnu skulu kynna viðskiptamönnum með tryggilegum hætti möguleika þeirra á að skjóta málum til nefndarinnar. Það eru viðskiptamenn hverju sinni sem hafa val um það hvort þeir leiti til nefndarinnar, þeir þurfa m.ö.o. ekki samþykki viðkomandi fyrirtækis fyrir málskoti.

Hvernig á að óska eftir úrskurði

Fylla þarf út sérstakt eyðublað sem hægt er að nálgast með því að smella hérna
(Málsskotseyðublað (Acrobat))
. Einnig er hægt að nálgast eyðublaðið á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, hjá Samtökum fjármálafyrirtækja eða Neytendasamtökunum. Eyðublaðinu skal skila eða senda í pósti til skrifstofu Fjármálaeftirlitsins.

Sé viðskiptamaður einstaklingur greiðir hann málskotsgjald, kr. 7.500, um leið og hann afhendir Fjármálaeftirlitinu kvörtun til úrskurðarnefndar. Málskotsgjald þetta fær viðskiptamaður endurgreitt við afhendingu úrskurðar ef krafa hans er að hluta eða öllu leyti tekin til greina. Heimilt er að endurgreiða viðskiptamanni málskotsgjald falli mál niður með samkomulagi viðskiptamanns og fyrirtækis sem kvörtun beinist gegn.

Sé viðskiptamaður einstaklingur í atvinnurekstri, og kvörtun hans tengist atvinnurekstrinum, greiðir hann málskotsgjald er nemur kr. 22.500 um leið og hann afhendir Fjármálaeftirlitinu kvörtun. Sé viðskiptamaður lögaðili greiðir hann málskotsgjald er nemur kr. 45.000 um leið og hann afhendir Fjármálaeftirlitinu kvörtun. Það sama á við um viðskiptamenn í atvinnurekstri og lögaðila og um einstaklinga hvað varðar endurgreiðslu málskotsgjalds, þ.e. það fæst endurgreitt við afhendingu úrskurðar ef krafa er að hluta eða öllu leyti tekin til greina.

Ekki er tekið við kvörtun nema málskotsgjald sé greitt á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, eða það sent með kvörtuninni.

Mikilvægt er að málskotinu fylgi gögn sem upplýsi um þann ágreining sem fyrir hendi er og afstöðu aðila þ. á m. röksemdir fyrir kvörtun, sjónarmið málskotsaðilans o.s.frv. sjá nánar málskotseyðublaðið, þannig að unnt sé að úrskurða í málinu. Góður undirbúningur auðveldar störf nefndarinnar og flýtir fyrir lyktum málsins. Nauðsynlegt er að þeir sem óska eftir úrskurði nefndarinnar kynni sér vel upplýsingar um nefndina og störf hennar, en hægt er að nálgast samþykktir nefndarinnar hér.

Hvernig vinnur nefndin?

Eftir móttöku kvörtunar sendir nefndin gögn sem kvörtuninni fylgja til viðkomandi fyrirtækis og annarra sem málið kann að varða sérstaklega svo sem ábyrgðarmanna.

Hafi fyrirtæki sem kvörtun beinist að ekki sent mótmæli eða athugasemdir til nefndarinnar innan þriggja vikna frá móttöku kvörtunar má afgreiða málið á grundvelli framlagðra gagna nema nefndin samþykki beiðni fjármálafyrirtækis um lengri frest.

Kvörtun má draga til baka á hvaða stigi sem er.  Málið fellur niður ef fyrirtæki sem kvörtun beinist að og viðskiptamaður ná samkomulagi um lausn þess.
Nefndin tekur ákvörðun um hvaða gagna þurfi að afla áður en úrskurður verður felldur.  Nefndin getur kallað aðila til skýrslugjafar.  Mæti aðili ekki án löglegra forfalla eða neitar að gefa nefndinni þær upplýsingar sem óskað er, getur nefndin vísað málinu frá eða afgreitt málið á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja. 

Nefndin getur einnig óskað eftir sérstökum sérfræðiálitum telji hún þess þörf.  Almennt skal við það miðað, að fyrirtæki sem kvörtun beinist gegn afli þeirra sérfræðiálita, sem þörf er talin á að aflað verði.  Nefndin getur þá ákvarðað að afla slíkra gagna án milligöngu málsaðila og tekur að öðru leyti ákvörðun um gagnaöflun.

Úrskurður nefndarinnar skal liggja fyrir innan átta vikna frá því að öll gögn tengd viðkomandi kvörtun bárust nefndinni.

Niðurstaða nefndarinnar skal send aðilum með staðfestum hætti innan 10 daga frá því úrskurður er kveðinn upp.  Viðskiptamaður skal um leið upplýstur um, að hann geti lagt málið fyrir dómstóla eða aðra aðila sé um það að ræða.  Almennt skal veita 4 vikur frá útsendingu til að fullnægja úrskurði.

Nefndarmaður er vanhæfur til meðferðar máls og skal víkja sæti eigi vanhæfisreglur 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við um hann. Nefndarmaður getur ávallt sagt sig frá máli telji hann sig vanhæfan.

Takmörk eru sett fyrir heimild til endurupptöku mála sem undirstrika mikilvægi þess að vandað sé til málskots hverju sinni. Samkvæmt samþykktum nefndarinnar getur nefndin tekið ákvörðun um að mál sem úrskurðað hefur verið í af nefndinni skuli tekið fyrir aftur ef fram koma nýjar upplýsingar sem eru þess eðlis að hefðu þær legið fyrir við uppkvaðningu úrskurðar gætu þær hafa leitt til annarrar niðurstöðu.

Úrskurður nefndarinnar hindrar ekki umfjöllun dómstóla síðar.

Hverjir sitja í nefndinni?

Í nefndinni sitja fimm nefndarmenn með haldbæra þekkingu á starfssviði nefndarinnar og eru valdir til tveggja ára í senn.  Nefndarmenn skulu vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og ætíð hafa haft forræði bús síns.  Formaður og varaformaður skulu auk þess uppfylla hæfisskilyrði héraðsdómara. Skulu tveir nefndarmenn skipaðir sameiginlega af fjármálafyrirtækjum sem aðild eiga að nefndinni, tveir af Neytendasamtökunum og einn af efnahags- og viðskiptaráðherra sem jafnframt er formaður nefndarinnar.  Varamenn eru skipaðir með sama hætti og skulu uppfylla sömu hæfisskilyrði.  Varamaður formanns er formaður í forföllum hans.


Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Nefndir > Úrskurðarnefndir > Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

  • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
  • Efnahagsmál
  • Erlent samstarf
  • Fasteignasalar
  • Félagaréttur
  • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
  • Fjármálamarkaður
  • Gjaldeyrismál
  • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
  • Rafræn viðskipti
  • Samkeppnismál
  • Vátryggingar
  • Verðbréfaviðskipti
  • Verslun og viðskipti
  • Nefndir
    • Allar nefndir
    • Á vegum Alþingis
    • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
    • Samningbundnar stjórnir og nefndir
    • Tímabundin verkefni
    • Nefndir utan ráðuneyta
    • Erlent samstarf
    • Eftirlitsnefndir
    • Prófnefndir
    • Úrskurðarnefndir
      • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
  • Leyfisveitingar
  • Eyðublöð
  • Stofnanir

www.vidskiptaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
    • Erlent samstarf
    • Nefndir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Leyfisveitingar
    • Eyðublöð
    • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Öll verkefni ...
  • Útgefið efni
    • Fréttatilkynningar
    • Skýrslur og greinagerðir
    • RSS-þjónusta
  • Lög og reglugerðir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Fjárfesting erl. aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Gjaldeyrismál o.fl.
    • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

    • Allir flokkar...

Samskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið - Skuggasundi 3 - 150 Reykjavík (Sjá kort)
Sími 545 8800 - Bréfasími 511 1161 - Kt.: 700269-7369 - Netfang: postur@evr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna - Ritstjórn

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica