Frávísanir
Mál 1/2004 - Frávísun
Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefur móttekið erindi yðar dags. 30. desember sl. og tekið það til umfjöllunar. Í erindinu er þess óskað að líkamsræktarstöðin X verði úrskurðuð til þess að endurgreiða yður hluta námskeiðsgjald vegna ......námskeiðs.
Lögbundið hlutverk kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa er að fjalla um ágreining um réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup og lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup.
Hin umdeildu viðskipti falla ekki undir lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup.
Í 1. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup er kveðið á um gildissvið laganna, þar segir:
"1. gr. Lög þessi taka til hvers kyns samninga um kaup á þjónustu sem veitt er neytendum í atvinnuskyni gegn endurgjaldi og þegar veitt þjónusta felur í sér:
1. vinnu við lausafjármuni,
2. vinnu við fasteignir, vinnu vegna byggingarframkvæmda eða aðrar framkvæmdir á landi,
3. geymslu á lausafjármunum,
4. ráðgjafarþjónustu sem veitt er í tengslum við 2. tölul."
Af þessu er ljóst að lög nr. 42/2000 um þjónustukaup eiga ekki við þá þjónustu er beiðni yðar um álitsgerð varðar. Með vísan til ofangreinds er máli þessu vísað frá kærunefndinni.
