Frávísanir
Mál nr. 3/2004 - Frávísun
Varðar: Mál nr. 3/2004 hjá Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa.
Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefur móttekið erindi yðar dags. 1. mars s.l.
Í erindinu kemur fram að þér eigið í ágreiningi við stjórn X vegna greiðslu reikninga fyrir sérfræðiþjónustu.
Lögbundið hlutverk kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa er að fjalla um ágreining um réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup og lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup.
Hin umdeildu viðskipti falla ekki undir lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup.
Í 1. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup er kveðið á um gildissvið laganna, þar segir:
"1. gr. Lög þessi taka til hvers kyns samninga um kaup á þjónustu sem veitt er neytendum í atvinnuskyni gegn endurgjaldi og þegar veitt þjónusta felur í sér:
1. vinnu við lausafjármuni,
2. vinnu við fasteignir, vinnu vegna byggingarframkvæmda eða aðrar framkvæmdir á landi,
3. geymslu á lausafjármunum,
4. ráðgjafarþjónustu sem veitt er í tengslum við 2. tölul."
Lögin um þjónustukaup, nr. 42/2000 eiga samkv. framangreindu eingöngu við gagnvart neytendum í þeim tilfellum sem greinir í 1.- 4. lið 1. gr. Stjórn getur ekki talist neytandi, í skilningi laganna. Af þessu er ljóst að lög nr. 42/2000 um þjónustukaup eiga ekki við varðandi þann ágreining er beiðni yðar um álitsgerð varðar. Með vísan til ofangreinds er máli þessu vísað frá kærunefndinni.
