Frávísanir
Mál nr. 4/2004 - Frávísun
Varðar: Mál nr. 4/2004 hjá Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa.
Vísað er til erindis yðar, dags. 3. mars s.l., þar sem óskað er eftir álitsgerð kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa í ágreiningi X við Y, húsasmíðameistara, vegna kaupa á eldhúsinnréttingu.
Svo sem fram kemur í gögnum sem fylgdu beiðninni er ágreiningurinn til meðferðar í héraðsdómi.
Kærunefndin hefur fjallað um erindið og er samdóma álit nefnarmanna að ekki sé eðlilegt að nefndin taki til efnislegrar meðferðar ágreining sem er til umfjöllunar fyrir dómstólum. Þess utan er þess farið á leit við nefndina að hún meti hæfilega þóknun fyrir verk það sem lýst er í erindinu. Kærunefndin hefur ekki tök á að kveða uppúr um slíkt mat en úr hvorutveggja er unnt að leysa fyrir héraðsdómi, með öflun matsgerðar eða með öðrum hætti.
Þess má ennfremur geta að tilgangur löggjafans með skipan kærunefndar var sá að leggja aðilum í lausafjár- og þjónustukaupum til ódýra og skjótvirka leið til þess að fá álitsgerð um réttarágreining á gildissviði laganna. Málsmeðferðarreglur mæla fyrir um skriflega málsmeðferð og öflun gagna með fyrirspurnum nefndarinnar til beggja aðila. Nefndin kallar ekki til matsmenn. Eðli máls samkvæmt getur nefndin því ekki gefið út matskenndar álitsgerðir sem krefjast sérfræðikunnáttu eða vettvangsrannsóknar með þeim hætti sem virðist gert ráð fyrir í beiðni yðar. Nefndin telur erindi þetta því í réttum farvegi fyrir héraðsdómi og vísar erindinu frá.
