Frávísanir
Mál nr. 2/2005 - Frávísun
Vísað er til erindis yðar, dags. 26. júní s.l., þar sem óskað er eftir álitsgerð kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa í ágreiningi yðar við Y sf., vegna endurbóta á íbúðarhúsnæði.
Fram hefur komið að fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur er mál milli yðar og gagnaðila yðar fyrir nefndinni.
Kærunefndin hefur fjallað um erindið og er samdóma álit nefnarmanna að ekki sé eðlilegt að nefndin taki til efnislegrar meðferðar ágreining sem er til umfjöllunar fyrir dómstólum. Er sérstaklega á það bent að allar þær kröfur sem þér hafið uppi fyrir nefndinni er einnig hægt að hafa uppi við umfjöllun málsins fyrir dómstólum. Erindi yðar felur það í sér að Kærunefndin leggi mat á hvert eðlilegt endurgjald er fyrir þjónustu sem gagnaðili hefur látið yður í té. Kærunefndin hefur ekki tök á að kveða uppúr um slíkt mat en úr hvorutveggja er unnt að leysa fyrir héraðsdómi, með öflun matsgerðar eða með öðrum hætti.
Þess má ennfremur geta að tilgangur löggjafans með skipan kærunefndar var sá að leggja aðilum í lausafjár- og þjónustukaupum til ódýra og skjótvirka leið til þess að fá álitsgerð um réttarágreining á gildissviði laganna. Málsmeðferðarreglur mæla fyrir um skriflega málsmeðferð og öflun gagna með fyrirspurnum nefndarinnar til beggja aðila. Eðli máls samkvæmt getur nefndin því ekki gefið út matskenndar álitsgerðir sem krefjast sérfræðikunnáttu eða vettvangsrannsóknar með þeim hætti sem virðist gert ráð fyrir í beiðni yðar. Nefndin telur erindi þetta því í réttum farvegi fyrir héraðsdómi og vísar erindinu frá.
F.h. kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa,
____________________________________
Pétur Örn Sverrisson, formaður.
