Efnahags- og viðskiptaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Frávísanir

Mál 3/2002 - Frávísun

Varðar mál nr. 3/2002 hjá Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa.

Vísað er til erindis yðar til Kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa, dags. 14. október sl., sem móttekið var af kærunefndinni þann 15. október sl. Í erindinu er óskað eftir áliti kærunefndarinnar vegna ágreinings yðar við fyrirtækið X um greiðslu á kostnaði við flutning sjónvarpstækis til viðgerðar.

Með bréfi dagsettu 18. nóvember sl. sendi kærunefndin erindi yðar til X til umsagnar. Umsögn X barst með bréfi dagsettu 8. desember sl. og var hún tekin til umfjöllunar nefndarinnar á fundi hennar 30. desember. Af henni má, að mati nefndarinnar, ráða, að fyrirtækið hafi sótt sjónvarpið til yðar á sinn kostnað og að viðgerð á tækinu sé lokið.

Samkvæmt 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða með lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup hefur kærunefndin það hlutverk að veita álit um ágreining aðila að lausafjár- og þjónustukaupum. Í álitsbeiðni þarf að koma fram með skýrum hætti hvert ágreiningsefni er, hver er krafa aðila og rökstuðningur fyrir henni. Kærunefndin fjallar ekki um almenn álitaefni sem snerta ekki tiltekinn réttarágreining. Ekki verður, að mati nefndarinnar, ráðið af gögnum málsins að ágreiningur sé milli yðar og X um greiðslu flutningskostnaðar.

Með vísan til ofangreinds er málinu vísað frá kærunefndinni.


Flokkar nefnda

  • Allar nefndir
  • Á vegum Alþingis
  • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
  • Samningbundnar stjórnir og nefndir
  • Tímabundin verkefni
  • Nefndir utan ráðuneyta
  • Erlent samstarf
  • Eftirlitsnefndir
  • Prófnefndir
  • Úrskurðarnefndir
    • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Nefndir > Úrskurðarnefndir > Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa >

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

  • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
  • Efnahagsmál
  • Erlent samstarf
  • Fasteignasalar
  • Félagaréttur
  • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
  • Fjármálamarkaður
  • Gjaldeyrismál
  • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
  • Rafræn viðskipti
  • Samkeppnismál
  • Vátryggingar
  • Verðbréfaviðskipti
  • Verslun og viðskipti
  • Frumvörp
  • Nefndir
    • Allar nefndir
    • Á vegum Alþingis
    • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
    • Samningbundnar stjórnir og nefndir
    • Tímabundin verkefni
    • Nefndir utan ráðuneyta
    • Erlent samstarf
    • Eftirlitsnefndir
    • Prófnefndir
    • Úrskurðarnefndir
      • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
  • Leyfisveitingar
  • Eyðublöð
  • Stofnanir

www.vidskiptaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
    • Erlent samstarf
    • Nefndir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Leyfisveitingar
    • Eyðublöð
    • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Öll verkefni ...
  • Útgefið efni
    • Fréttatilkynningar
    • Skýrslur og greinagerðir
    • RSS-þjónusta
  • Lög og reglugerðir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Fjárfesting erl. aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Gjaldeyrismál o.fl.
    • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

    • Allir flokkar...

Samskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið - Skuggasundi 3 - 150 Reykjavík (Sjá kort)
Sími 545 8800 - Bréfasími 511 1161 - Kt.: 700269-7369 - Netfang: postur@evr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna - Ritstjórn

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica