Frávísanir
Mál 2/2001 - Frávísun
Varðar: Mál nr. 2/2001 hjá Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa.
Kærunefnd hefur móttekið erindi yðar dags. 27. nóvember sl. og tekið það til umfjöllunar. Í erindinu er þess óskað að X verði úrskurðuð til að endurgreiða yður tiltekna fjárhæð vegna oftekinna greiðslna vegna raforkuviðskipta. Einnig er þess krafist að X verði úrskurðuð til að hætta tilgreindri gjaldtöku.
Lögbundið hlutverk kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa er að fjalla um ágreining um réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup og lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup gilda þau um kaup að svo miklu leyti sem ekki er á annan veg mælt fyrir í lögum. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarps til laga um lausafjárkaup kemur fram að samningar um sölu raforku teljist ekki til kaupa. Falla raforkuviðskipti því ekki undir lögin. Þá er ljóst að um viðskipti með raforku fer samkvæmt lögum nr. 58/1967 og reglugerð sem sett er á grundvelli laganna. Í 26. gr. þeirra laga segir: "Héraðsrafmagnsveitu, sem hlotið hefur einkarétt skv. 18. gr., er skylt að selja raforku öllum, sem þess óska, inna takmarka orkuveitusvæðis hennar, með þeim skilyrðum, sem nánar eru ákveðin í lögum þessum og í reglugerðum, sem settar verða samkvæmt þeim " Í 28. gr. laganna segir: "Gjald fyrir raforku frá héraðsrafmagnsveitu sem fellur undir ákvæði 24. gr. (nú 27. gr.) skal ákveða í gjaldskrá, sem stjórn veitunnar semur og ráðherra staðfestir...." Er því ljóst að um þau atriði sem kvörtun yðar snertir er fjallað í annarri löggjöf en þeim lögum sem kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa starfar samkvæmt.
Með vísan til ofangreinds er máli þessu vísað frá kærunefndinni.
