Úrskurðir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa
Úrskurður í máli 2/2003
I. Málsmeðferð kærunefndar.
Með bréfi, dags. 29. ágúst sl. beindi X, hér eftir nefndur álitsbeiðandi, erindi til nefndarinnar vegna ágreinings við Y, hér eftir nefnt gagnaðili.
Erindið var lagt fram á fundi nefndarinnar þann 18. nóvember 2003 og var samþykkt að taka það til efnislegrar meðferðar. Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 565/2001 um kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa var gagnaðila gefinn kostur á að koma á framfæri við nefndina sjónarmiðum sínum og kröfum.
Nefndin sendi beiðni álitsbeiðanda til umsagnar og barst svarbréf gagnaðila hinn 8. október 2003. Óskað var frekari gagna frá gagnaðila og bárust svör hinn 24. nóvember 2003. Álitsbeiðandi sendi nefndinni frekari upplýsingar að eigin frumkvæði og bárust þau gögn 10. desember 2003. Að gagnaöflun lokinni var málið tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar hinn 7. apríl 2004.
II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni.
Ágreiningur málsaðila snýst um það hvort gagnaðila sé skylt að bæta álitsbeiðanda tjón er hann varð fyrir vegna þess að háþrýstidæla í bifreið hans með skráningarnúmerið ......., gaf sig öðru sinni. Í fyrra skiptið er dæla sömu gerðar gaf sig var skipt um hana á vegum gagnaðila, álitsbeiðanda að kostnaðarlausu.
Álitsbeiðandi krefst þess að kærunefndin álykti að gagnaðila beri að bæta honum tjón það er hann varð fyrir við það að háþrýstidælan bilaði. Kostnað þennan kveður álitsbeiðandi vera kr. 100.000,- eða jafnan verði dælunnar. Álitsbeiðandi byggir á því að dæla sú sem gagnaðili afhenti honum í febrúar 2002 hafi verið haldin galla. Dæla þessi gaf sig í apríl 2003 eða rúmu ári eftir að hún var afhent álitsbeiðanda. Álitsbeiðandi byggir á því að dæla sú sem gaf sig hafi verið í ábyrgð því einungis hafi verið rúmt ár frá því að dælan var afhent álitsbeiðanda. Byggir hann á því að við afhendingu dælunnar beri að miða upphaf tímamarks ábyrgðartíma dælunnar.
Gagnaðili byggir á því að þar sem hann hafi látið álitsbeiðanda umrædda dælu í té honum að kostnaðarlausu í fyrra skiptið er vart varð bilunar gildi ábyrgð ekki varðandi það atvik er hér um ræðir. Kveðst gagnaðili hafa skipt um dæluna á grundvelli ákvæðis um framlengda ábyrgð. Því sé ljóst að álitsbeiðandi geti enga kröfu átt á hendur sér vegna atviksins. Gagnaðili dregur ekki í efa réttmæti fullyrðinga álitsbeiðanda þess efnis að dæla sú sem gagnaðili afhenti álitsbeiðanda í febrúar 2002 hafi reynst vera haldin galla. Þá gerir gagnaðili ekki athugasemd við fjárhæð kröfu álitsbeiðanda.
III. Forsendur
Þar sem hvorki virðist ágreiningur um fjárhæð kröfu álitsbeiðanda né þá fullyrðingu álitsbeiðanda að dæla sú er gaf sig hafi verið haldin galla kemur einungis til álita hvort viðkomandi söluhlutur var í ábyrgð þegar bilunar varð vart.
Koma þá til skoðunar ákvæði 32. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup. Í 2. mgr. 32. gr. tilvitnaðra laga er fjallað um frest til þess að leggja fram kvörtun vegna galla en þar segir:
"Ef kaupandi leggur ekki fram kvörtun innan tveggja ára frá þeim degi er hann veitti söluhlut viðtöku getur hann ekki síðar borið gallann fyrir sig. Þetta gildir ekki ef seljandi hefur í ábyrgðaryfirlýsingu eða öðrum samningi tekið á sig ábyrgð vegna galla í lengri tíma."
Ljóst er af gögnum málsins að dæla sú sem er tilefni ágreinings þessa var afhent álitsbeiðanda í febrúar 2002. Þá kemur einnig fram í gögnum málsins að gagnaðila var gert viðvart um bilun dælunnar og hann krafinn um bætur eigi síðar en í apríl 2003. En í málinu liggur fyrir rafpóstur dagsettur 29. apríl 2003 þar sem gagnaðili hafnar bótakröfu álitsbeiðanda vegna bilunar í háþrýstidælu. Það er því ljóst að tilkynning um bilun eða galla í umræddum söluhlut barst seljanda áður en frestur samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 50/2000 var úti.
Eins og málsatvikum er háttað í þessu máli telur Kærunefnd að þegar gagnaðili afhenti álitsbeiðanda háþrýstidælu til nota í bifreið álitsbeiðanda hafi nýr frestur samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 50/2000 byrjað að líða. Kærunefnd telur hér ekki skipta máli að þegar dælan var afhent var það gert samkvæmt ákvæði um "framlengda ábyrgð" eins og gagnaðili kemst að orði. Kærunefnd telur að eins og hér er háttað málum hafi álitsbeiðandi haft stöðu kaupanda í skilningi 2. mgr. 32. gr. laga nr. 50/2000 þrátt fyrir að gagnaðili hafi afhent honum söluhlutinn án sérstaks endurgjalds enda verður að telja að gagnaðili hafi þá komið fram sem fulltrúi framleiðanda bifreiða þeirra er hann hefur einkaumboð fyrir. Kærunefnd telur að þó að gagnaðili hafi afhent nýjan hlut í stað gallaðs hlutar á grundvelli ábyrgðar á söluhlut verði ekki gerðar aðrar kröfur til hinnar síðari afhendingar hvað varðar gæði söluhlutar. Því sé ljóst að gagnaðila beri að bæta álitsbeiðanda það tjón sem hann varð fyrir vegna bilunar þeirrar sem vart varð í háþrýstidælu sem gagnaðili afhenti álitsbeiðanda í febrúar 2002.
IV. Niðurstaða
Gagnaðila ber að bæta álitsbeiðanda það tjón sem hann varð fyrir vegna bilunar í háþrýstidælu í bifreiðinni ...... Gagnaðili greiði álitsbeiðanda kr. 100.000,-.
7. apríl 2004
Pétur Örn Sverrisson (sign)
Ólöf Embla Einarsdóttir (sign)
Tómas Sigurðsson (sign)
