Efnahags- og viðskiptaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Úrskurðir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa

Úrskurður í máli 7/2004

23.9.2005

I. Málsmeðferð

Nefndinni barst þann 8. júlí 2004 beiðni frá X, hér eftir nefnd álitsbeiðandi, vegna deilu hennar við bifreiðaverkstæðið Y sem hér eftir nefnist gagnaðili. Með bréfi dagsettu 12. júlí 2004 var gagnaðila gefinn kostur á að tjá sig um framkomna álitsbeiðni. Ekkert svar barst og var því send ítrekun hinn 16. ágúst. Skömmu síðar hafði Z, sonur  fyrirsvarsmanns gagnaðila, samband og kvað hann látinn. Z kvaðst myndu taka við frágangi mála eftir lát föður síns og var honum því sent bréf dagsett 4. september 2004 þar sem honum gafst kostur á að koma að athugasemdum við erindi álitsbeiðanda. Ekki hefur borist svar.

II. Málsatvik og ágreiningsefni

Álitsbeiðandi kveðst hafa farið með bifreið sína í viðgerð hjá gagnaðila þar sem skipt hafi verið um startara í henni. Álitsbeiðandi kveður munnlegt samkomulag hafa verið milli aðila um að viðgerðin ætti að hámarki að kosta 80.000 kr. Kveðst álitsbeiðandi hafa óskað eftir mati á kostnaði við viðgerðina vegna þess að bifreiðin hafi verið gömul og verðmæti hennar lágt í samræmi við það. Í erindi álitsbeiðanda er því lýst hvernig viðgerðin hafi gengið fyrir sig og kemur m.a. fram að gagnaðili hafi í fyrstu útvegað ranga varahluti til viðgerðarinnar og að það hafi tafið viðgerðina verulega og valdið frekari kostnaði. Einnig kemur fram í álitsbeiðni að aksturstölva bifreiðarinnar hafi verið í lagi fyrir viðgerðina en að viðgerð lokinni hafi hún ekki haft eðlilega virkni og að lokum verið dæmd ónýt. Álitsbeiðandi gerir ekki sjálfstæðar kröfur fyrir nefndinni vegna þessa. Krafa álitsbeiðanda er að viðurkennt verði að honum sé einungis skylt að greiða kr. 80.000,- eins og upphaflega var samið um. Fram kemur í gögnum málsins að álitsbeiðandi hefur þegar greitt kr. 45.000,- inn á skuld sína við gagnaðila. Álitsbeiðanda barst hinsvegar innheimtubréf frá lögmanni gagnaðila þar sem krafist er 132.616 kr. fyrir viðgerðina auk vaxta og kostnaðar.

III. Forsendur

Um það álitaefni sem hér er lagt fyrir nefndina eiga við lög nr. 42/2000 um þjónustukaup, eins og greinir í 1. gr. laganna. Einkum koma til skoðunar ákvæði VII. kafla um verð þjónustu.

Eins og að ofan greinir er ekki til að dreifa neinum gögnum eða andsvörum frá gagnaðila þrátt fyrir að ítrekað hafi verið leitað eftir afstöðu gagnaðilans og honum gefinn kostur á að tjá sig. Telur kærunefndin að þetta leiði til þess að leggja verði til grundvallar frásögn álitsbeiðanda á málsatvikum enda er málavaxtalýsing allnákvæm og trúverðug. Í 29. gr. tilvitnaðra laga segir:

"Hafi seljandi þjónustu látið neytanda verðáætlun í té má verðið ekki fara verulega fram úr þeirri áætlun."

Eins og fyrr greinir verður ekki annað séð af gögnum málsins en verðáætlun hafi verið látin í té í máli þessu og á því grein þessi við samkvæmt efni sínu. Jafnframt greinir í 30. gr. sömu laga að:

"Þrátt fyrir að seljandi þjónustu hafi gert tilboð eða verðáætlun ber honum viðbótargreiðsla hafi verð hækkað vegna kringumstæðna sem hann gat ekki séð fyrir."

Sú undantekning sem þarna greinir frá meginreglunni um að verðáætlun sem látin hefur verið í té skuli gilda, á ekki við hér. Virðist mega rekja aukinn kostnað við viðgerð til mistaka gagnaðila eða starfsmanna hans við pöntun eða kaup varahluta. Ljóst er að álitsbeiðandi leitaði til gagnaðila sem fagmanns í bifreiðaviðgerðum og verður gagnaðili hér að bera hallann af mistökum sínum eða starfsmanna sinna.

 

IV. Niðurstaða

Álitsbeiðanda er skylt að greiða gagnaðila fyrir viðgerð á Volvo-bifreið álitsbeiðanda í samræmi við upphaglega áætlun gagnaðila, kr. 80.000,- að frádreginni innborgun að fjárhæð kr. 45.000,-

 

23. september 2005

Pétur Örn Sverrisson

Íris Ösp Ingjaldsdóttir

Sigríður Andersen




Frávísanir

Mál nr. 10/2005 - Frávísun

Lesa meira
 

Má nr. 8/2005 - Afturkallað af hálfu álitsbeiðanda.

Lesa meira
 

Mál nr. 5/2005 - Afturkallað af hálfu álitsbeiðanda

Lesa meira
 

Mál nr. 2/2005 - Frávísun

Lesa meira
 
  • Mál nr. 4/2004 - Frávísun
  • Mál nr. 3/2004 - Frávísun
  • Mál 1/2004 - Frávísun
  • Mál nr. 1/2003 - Frávísun
  • Mál 3/2002 - Frávísun
  • Mál 2/2001 - Frávísun
  • Mál 1/2001 - Frávísun.

Flokkar nefnda

  • Allar nefndir
  • Á vegum Alþingis
  • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
  • Samningbundnar stjórnir og nefndir
  • Tímabundin verkefni
  • Nefndir utan ráðuneyta
  • Erlent samstarf
  • Eftirlitsnefndir
  • Prófnefndir
  • Úrskurðarnefndir
    • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Nefndir > Úrskurðarnefndir > Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

  • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
  • Efnahagsmál
  • Erlent samstarf
  • Fasteignasalar
  • Félagaréttur
  • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
  • Fjármálamarkaður
  • Gjaldeyrismál
  • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
  • Rafræn viðskipti
  • Samkeppnismál
  • Vátryggingar
  • Verðbréfaviðskipti
  • Verslun og viðskipti
  • Frumvörp
  • Nefndir
    • Allar nefndir
    • Á vegum Alþingis
    • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
    • Samningbundnar stjórnir og nefndir
    • Tímabundin verkefni
    • Nefndir utan ráðuneyta
    • Erlent samstarf
    • Eftirlitsnefndir
    • Prófnefndir
    • Úrskurðarnefndir
      • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
  • Leyfisveitingar
  • Eyðublöð
  • Stofnanir

Vottun um aðgengi vefsíðu - forgangur A

www.vidskiptaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
    • Erlent samstarf
    • Nefndir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Leyfisveitingar
    • Eyðublöð
    • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Öll verkefni ...
  • Útgefið efni
    • Fréttatilkynningar
    • Skýrslur og greinagerðir
    • RSS-þjónusta
  • Lög og reglugerðir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Fjárfesting erl. aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Gjaldeyrismál o.fl.
    • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

    • Allir flokkar...

Samskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið - Skuggasundi 3 - 150 Reykjavík (Sjá kort)
Sími 545 8800 - Bréfasími 511 1161 - Kt.: 700269-7369 - Netfang: postur@evr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna - Ritstjórn

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica