Efnahags- og viðskiptaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Úrskurðir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa

Úrskurður í máli 2/2004

26.8.2004

I. Málsmeðferð.

Með bréfi, dags. 20. febrúar sl. beindi X, hér eftir nefnd álitsbeiðandi, erindi til nefndarinnar vegna ágreinings við Y ehf, hér eftir nefnt gagnaðili.

Reglulegur fulltrúi Neytendasamtakanna, Ólöf Embla Einarsdóttir taldi sig vanhæfa vegna fyrri afskipta af málefninu og vék því sæti. Varamaður hennar Jón Magnússon tók sæti í nefndinni vegna þessa máls. Ákveðið var að taka erindið til efnislegrar meðferðar. Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 9 .gr. reglugerðar nr. 565/2001 um kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa var gagnaðila gefinn kostur á að koma á framfæri við nefndina sjónarmiðum sínum og kröfum.

Nefndin sendi gagnaðila beiðni álitsbeiðanda til umsagnar með bréfi dags. 2. mars 2004 en ráðuneytinu barst ekkert svarbréf. Ráðuneytið sendi gagnaðila ítrekunarbréf dags. 4. maí 2004, þar sem honum var öðru sinni gefinn kostur á að tjá sig um erindi álitsbeiðanda. Gagnaðili svaraði ekki bréfi ráðuneytisins og var því málið tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar hinn 26. ágúst 2004

II. Helstu málasatvik og ágreiningsefni.

Álitsbeiðandi keypti eldhúsinnréttingu, borðplötur og fylgihluti af gagnaðila þann 31. júlí 2003. Umsamið kaupverð var kr. 394.801,-. Samið var um afhendingu í byrjun september sama ár. Dráttur varð á því að gagnaðili afhenti umræddar vörur og voru álitsbeiðanda afhentar vörurnar í byrjun október eða um mánuði of seint. Við afhendingu kom í ljós að galli var á annarri borðplötunni og hin var of stutt. Einnig vantaði fimm ljós af sex sem afhenda átti auk þess sem tvær skrauthillur vantaði. Álitsbeiðandi fékk til sín trésmið sem m.a. lagfærði aðra borðplötuna og varð einnig að minnka skáp sem var stærri en gert var ráð fyrir skv. pöntuninni. Þar að auki komu pípulagningamaður og rafvirki en þeir gátu aðeins framkvæmt hluta af þeirri vinnu sem þeir áttu að inna af hendi þar sem öll eldhúsinnréttingin var ekki komin. Í byrjun nóvember var álitsbeiðanda afhent ný borðplata í stað þeirrar sem var of stutt auk ljósanna fimm sem hafði vantað. Síðar kom í ljós að eitt ljósanna var gallað. Álitsbeiðandi varð því að fá iðnaðarmennina aftur til þess að halda verkinu áfram.

Álitsbeiðandi kveður sig hafa orðið fyrir fjárhagslegu sem og ófjárhagslegu tjóni sem gagnaðili beri ábyrgð á. Álitsbeiðandi kveður fjárhagslegt tjón grundvallast á afhendingardrætti og galla. Endurkomur iðnaðarmanna vegna afhendingardráttar og aukaverk þeirra vegna galla hafa haft það í för með sér að reikningur vegna vinnu þeirra er mun hærri ella. Krafa álitsbeiðanda vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns hljóðar upp á kr. 63.441.-. Gagnaðili skilaði ekki umsögn um álitsbeiðnina.

III. Forsendur.

Samkvæmt 9. gr. reglugerðar nr. 565/2001 um kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa skal nefndin afhenda gagnaðila álitsbeiðni til umsagnar og veita honum frest til að tjá sig um hana. Nefndin sendi gagnaðila álitsbeiðnina til umsagnar en hann svaraði því engu. Nefndin skoraði síðar á hann að tjá sig um álitsbeiðnina þegar í fyrri frestur var útrunninn. Gagnaðili lét það undir höfuð leggjast að senda nefndinni umsögn um álitsbeiðnina og því byggir nefndin álit sitt á þeim gögnum fyrir henni liggja og álitsbeiðandi hefur lagt fram.

Krafa álitsbeiðanda grundvallast á því að gagnaðili hafi ekki afhent umsamdar vörur á réttum tíma og einnig hafi sumar þeirra verið gallaðar. Fjárhagslegt tjón er rökstutt með reikningum sem álitsbeiðandi lagði fram. Álitsbeiðandi kveður sig einnig hafa orðið fyrir ófjárhagslegu tjóni vegna vanefnda gagnaðila. Í ljósi þess að gagnaðili hefur hvorki skilað inn greinargerð, né heldur gert athugsasemdir við álitsbeiðni með nokkrum hætti, þá er einungis byggt á málatilbúnaði álitsbeiðanda og krafa hans vegna vanefnda gagnaðila tekin að öllu leyti til greina. Rétt þykir að krafa álitsbeiðanda beri dráttarvexti í samræmi við 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

 

 

IV. Niðurstaða.

Það er álit nefndarinnar að gagnaðila beri að bæta álitsbeiðanda það tjón sem hún hefur orðið fyrir vegna vanefnda gagnaðila á kaupsamningi aðila. Gagnaðili greiði álitsbeiðanda kr. 63.441,- auk dráttarvaxta frá 28. febrúar 2004 í samræmi við 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

 

26. ágúst 2004

Pétur Örn Sverrisson, formaður (sign)

Tómas Sigurðsson, hdl. (sign)

Jón Magnússon, hrl. (sign)




Frávísanir

Mál nr. 10/2005 - Frávísun

Lesa meira
 

Má nr. 8/2005 - Afturkallað af hálfu álitsbeiðanda.

Lesa meira
 

Mál nr. 5/2005 - Afturkallað af hálfu álitsbeiðanda

Lesa meira
 

Mál nr. 2/2005 - Frávísun

Lesa meira
 
  • Mál nr. 4/2004 - Frávísun
  • Mál nr. 3/2004 - Frávísun
  • Mál 1/2004 - Frávísun
  • Mál nr. 1/2003 - Frávísun
  • Mál 3/2002 - Frávísun
  • Mál 2/2001 - Frávísun
  • Mál 1/2001 - Frávísun.

Flokkar nefnda

  • Allar nefndir
  • Á vegum Alþingis
  • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
  • Samningbundnar stjórnir og nefndir
  • Tímabundin verkefni
  • Nefndir utan ráðuneyta
  • Erlent samstarf
  • Eftirlitsnefndir
  • Prófnefndir
  • Úrskurðarnefndir
    • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Nefndir > Úrskurðarnefndir > Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

  • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
  • Efnahagsmál
  • Erlent samstarf
  • Fasteignasalar
  • Félagaréttur
  • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
  • Fjármálamarkaður
  • Gjaldeyrismál
  • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
  • Rafræn viðskipti
  • Samkeppnismál
  • Vátryggingar
  • Verðbréfaviðskipti
  • Verslun og viðskipti
  • Frumvörp
  • Nefndir
    • Allar nefndir
    • Á vegum Alþingis
    • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
    • Samningbundnar stjórnir og nefndir
    • Tímabundin verkefni
    • Nefndir utan ráðuneyta
    • Erlent samstarf
    • Eftirlitsnefndir
    • Prófnefndir
    • Úrskurðarnefndir
      • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
  • Leyfisveitingar
  • Eyðublöð
  • Stofnanir

Vottun um aðgengi vefsíðu - forgangur A

www.vidskiptaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
    • Erlent samstarf
    • Nefndir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Leyfisveitingar
    • Eyðublöð
    • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Öll verkefni ...
  • Útgefið efni
    • Fréttatilkynningar
    • Skýrslur og greinagerðir
    • RSS-þjónusta
  • Lög og reglugerðir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Fjárfesting erl. aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Gjaldeyrismál o.fl.
    • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

    • Allir flokkar...

Samskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið - Skuggasundi 3 - 150 Reykjavík (Sjá kort)
Sími 545 8800 - Bréfasími 511 1161 - Kt.: 700269-7369 - Netfang: postur@evr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna - Ritstjórn

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica