Efnahags- og viðskiptaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Úrskurðir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa

Úrskurður í máli 9/2004

24.5.2005

I. Málsmeðferð kærunefndar.

Með bréfi, dags. 7.12.2004 beindi X, hér eftir nefndur álitsbeiðandi, erindi til nefndarinnar vegna ágreinings við Y, hér eftir nefnt gagnaðili.

Kærunefnd samþykkti að taka erindið til efnislegrar meðferðar. Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 565/2001 um kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa var gagnaðila gefinn kostur á að koma á framfæri við nefndina sjónarmiðum sínum og kröfum.

Nefndin sendi beiðni álitsbeiðanda til umsagnar og barst svarbréf gagnaðila hinn 27. desember 2004. Álitsbeiðanda var gefinn kostur á að bregðast við svarbréfi gagnaðila og barst svar hans ásamt viðbótargögnum hinn 4. mars sl. Kærunefnd taldi rétt að óska frekari skýringa á samskiptum álitsbeiðanda og gagnaðila og var það gert með bréfi dagsettu 15. mars er var svarað 16. mars og aftur með bréfi dagsettu 22. apríl en svar við því barst 25. sama mánaðar.

Að gagnaöflun lokinni var málið tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar hinn 24. maí 2005.

II. Helstu málsatvik, ágreiningsefni og kröfur.

Ágreiningur málsaðila snýst um það hvort gagnaðila sé skylt að bæta álitsbeiðanda tjón er hann kveðst hafa orðið fyrir vegna bilunar í tölvuskjá. Telur álitsbeiðandi að um galla í skjánum hafi verið að ræða. Álitsbeiðandi krefst þess að kærunefndin álykti að gagnaðila beri að bæta honum tjón það er hann varð fyrir við það að bilunar/galla varð vart í tölvuskjánum. Álitsbeiðandi kveður úrslit málsins velta á því hvort talið verði að ný afhending á tölvuskjá hafi átt sér stað í maí 2003. Telur álitsbeiðandi að við afhendingu á nýjum hlut í stað gallaðs hlutar byrji nýr tveggja ára fyrningarfrestur á ábyrgð að líða. Vísar álitsbeiðandi m.a. til fyrri úrlausnar Kærunefndar í máli nr. 2/2003 þessu til stuðnings. 

Álitsbeiðandi kveður málsatvik vera þau að hann hafi í lok desember 2000 keypt tölvuskjá af gerðinni ViewSonic PF815 21” Professional af gagnaðila. Síðar hafi orðið vart bilunar í skjánum og eftir nokkra bið m.a. vegna bilanaleitar hafi orðið samkomulag milli álitsbeiðanda og gagnaðila að bæta úr gallanum á þann veg að álitsbeiðandi hafi fengið afhentan nýjan skjá hinn 23. maí 2003. Hafi sá skjár verið af gerðinni ViewSonic P220 OF, sem hafi verið sambærilegur við hinn fyrri skjá. Svo illa hafi þó viljað til að skjár þessi hafi í október 2004 einnig bilað. Hafi þá verið farið með skjáinn til gagnaðila sem skoðaði hann og tók greiðslu fyrir bilanaleit, kr. 2.739,-. Álitsbeiðandi kveðst hafa farið fram á að fá afhentan nýjan skjá en gagnaðili hafi neitað því á þeim forsendum að ábyrgðin væri útrunnin. 

Álitsbeiðandi leitaði aðstoðar Neytendasamtakanna er rituðu gagnaðila bréf og lýstu þar sjónarmiðum álitsbeiðanda. Í svarbréfi gagnaðila til Neytendasamtakanna dagsettu 3. nóvember 2004, sem fylgdi erindi álitsbeiðanda, kemur fram að samkvæmt skilmálum ábyrgðarskírteinis fyrir ViewSonic skjái sé ábyrgðartími lengri en almennt gerist eða 3 ár. Svo hátti hins vegar til í máli þessu að þetta þriggja ára tímabil sé liðið og því sé skjár álitsbeiðanda úr ábyrgð. 

Eins og fyrr greinir gaf Kærunefnd gagnaðila kost á að tjá sig um erindi álitsbeiðanda. Í bréfi gagnaðila til Kærunefndar dagsettu 27. desember 2004 kemur fram að gagnaðili telji að í nóvember 2004 hafi ábyrgðartími vegna skjás sem keyptur var í desember 2000 verið liðinn. Jafnframt kemur fram að gagnaðili telur að tölvuskjár sá sem álitsbeiðandi kom með til viðgerðar í nóvember 2004 hafi hvorki verið seldur eða afhentur af gagnaðila. 

Í tilefni af svari gagnaðila lýsti álitsbeiðandi samskiptum sínum við gagnaðila nánar í bréfi til Kæruefndar dagsettu 4. mars sl. Vísar álitsbeiðandi þar til samskipta sinna við nafngreindan sölumann hjá gagnaðila er hann kveður hafa staðið að afhendingu hins nýja skjás í maí 2003 og einnig að átt hafi verið samskipti við sama sölumann þegar gagnaðili neitaði ábyrgð á tölvuskjánum í október 2004. Með bréfi þessu sendi álitsbeiðandi einnig mynd af tölvuskjá þeim sem bilunar varð vart í haustið 2004. Má þar greina að tölvuskjár sá sem myndin er af hefur verið framleiddur í mars 2003. Einnig má greina að á skjánum er límmiði með nafni gagnaðila. Þá sést einnig á myndinni að á skjáinn hefur verið límdur miði með strikamerki sem virðist tilheyra þeim skjá sem álitsbeiðandi keypti af gagnaðila í desember 2000.

Gagnaðila var gefinn kostur á að láta uppi afstöðu sína til hinna nýju gagna er álitsbeiðandi hafði lagt fram. Í bréfum gagnaðila dagsettum 16. mars og 22. apríl kemur ekki fram bein afstaða til gagnanna heldur er vísað til þess að gagnaðili hafi einungis átt samskipti við álitsbeiðanda í desember 2000 og svo aftur í október eða nóvember 2004.

III. Forsendur

Það er mat Kærunefndar að niðurstaða í máli þessu velti á því hvort sannað sé að gagnaðili hafi bætt úr galla á tölvuskjá þeim er keyptur var í desember 2000 með afhendingu á nýjum tölvuskjá í maí 2003. Eins og álitsbeiðandi bendir á hefur Kærunefnd áður komist að þeirri niðurstöðu að þegar bætt er úr galla í söluhlut með afhendingu á nýjum, ógölluðum hlut í stað þess gallaða, byrji nýr ábyrgðarfrestur að líða miðað við hina síðari afhendingu, sbr. álit Kærunefndar í máli nr. 2/2003.

Eins og mál þetta er lagt fyrir nefndina skortir með öllu sönnun þess að gagnaðili hafi bætt úr galla á tölvuskjá þeim sem keyptur var í desember 2000 með því að afhenda nýjan skjá í maí 2003. Álitsbeiðandi hefur ritað á hinn upphaflega reikning er fylgdi tölvuskjánum sem keyptur var í desember 2000, að nýr skjár hafi verið afhentur 27. maí 2003 og aftan við ritað nafn þess sölumanns sem hann kveður hafa séð um afhendinguna. Dagsetning sú sem rituð er á reikninginn er ekki sú sama og álitsbeiðandi tilgreinir í erindi sínu til Kærunefndar, en þar kveður hann afhendinguna hafa átt sér stað 23. maí 2003. 

Þá telur Kærunefnd að ljósmynd af skjá þeim er álitsbeiðandi kveðst hafa fengið afhentan frá gagnaðila sanni ekki að gangaðili hafi afhent álitsbeiðanda skjáinn. Límmiðar merktir Y, sem eru á skjá þeim sem álitsbeiðandi kveðst hafa fengið afhentan í maí 2003 eru að mati Kærunefndar ekki einir og sér, gegn neitun gagnaðila, nægileg sönnun þess að gagnaðili hafi afhent álitsbeiðanda umræddan skjá.

Þar eð ekki koma til greina önnur sönnunargögn fyrir nefndinni en þau sem eru skjalleg verður ekki skorið úr því fyrir nefndinni hvort afhending nýs tölvuskjás átti sér stað í maí 2003. Samkvæmt almennum reglum um sönnunarbyrði ber álitsbeiðandi hallann af slíkum sönnunarskorti. Gagnaðili neitar því alfarið að hafa afhent skjá þann sem mynd álitsbeiðanda er af. Kærunefnd getur ekki gegn mótmælum gagnaðila lagt til grundvallar að nýr tölvuskjár hafi verið afhentur í maí 2003. 

Ljóst er að þegar svo háttar til að söluaðili bætir úr galla með afhendingu nýs söluhlutar í stað þess sem gallaður var í samræmi við 32. gr. 50/2000 um lausafjárkaup, er nauðsynlegt að gefinn sé út nýr reikningur sem að sínu leyti tryggir sönnum þess að ný afhending hafi átt sér stað og að nýr ábyrgðarfrestur hafi hafist. 

IV. Niðurstaða

Ekki er fært að verða við kröfum álitsbeiðanda um endurgreiðslu á fjárhæð kr. 118.739 vegna gallaðs tölvuskjás. 

24. maí 2005 

Pétur Örn Sverrisson

Helga Hlín Hákonardóttir

Íris Ösp Ingjaldsdóttir 




Frávísanir

Mál nr. 10/2005 - Frávísun

Lesa meira
 

Má nr. 8/2005 - Afturkallað af hálfu álitsbeiðanda.

Lesa meira
 

Mál nr. 5/2005 - Afturkallað af hálfu álitsbeiðanda

Lesa meira
 

Mál nr. 2/2005 - Frávísun

Lesa meira
 
  • Mál nr. 4/2004 - Frávísun
  • Mál nr. 3/2004 - Frávísun
  • Mál 1/2004 - Frávísun
  • Mál nr. 1/2003 - Frávísun
  • Mál 3/2002 - Frávísun
  • Mál 2/2001 - Frávísun
  • Mál 1/2001 - Frávísun.

Flokkar nefnda

  • Allar nefndir
  • Á vegum Alþingis
  • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
  • Samningbundnar stjórnir og nefndir
  • Tímabundin verkefni
  • Nefndir utan ráðuneyta
  • Erlent samstarf
  • Eftirlitsnefndir
  • Prófnefndir
  • Úrskurðarnefndir
    • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Nefndir > Úrskurðarnefndir > Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

  • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
  • Efnahagsmál
  • Erlent samstarf
  • Fasteignasalar
  • Félagaréttur
  • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
  • Fjármálamarkaður
  • Gjaldeyrismál
  • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
  • Rafræn viðskipti
  • Samkeppnismál
  • Vátryggingar
  • Verðbréfaviðskipti
  • Verslun og viðskipti
  • Frumvörp
  • Nefndir
    • Allar nefndir
    • Á vegum Alþingis
    • Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
    • Samningbundnar stjórnir og nefndir
    • Tímabundin verkefni
    • Nefndir utan ráðuneyta
    • Erlent samstarf
    • Eftirlitsnefndir
    • Prófnefndir
    • Úrskurðarnefndir
      • Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
  • Leyfisveitingar
  • Eyðublöð
  • Stofnanir

Vottun um aðgengi vefsíðu - forgangur A

www.vidskiptaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Ársreikningar, endurskoðendur og viðurkenndir bókarar
    • Erlent samstarf
    • Nefndir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Leyfisveitingar
    • Eyðublöð
    • Fjárfestingar erl.aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Öll verkefni ...
  • Útgefið efni
    • Fréttatilkynningar
    • Skýrslur og greinagerðir
    • RSS-þjónusta
  • Lög og reglugerðir
    • Fasteignasalar
    • Félagaréttur
    • Fjárfesting erl. aðila og innflutningur
    • Fjármálamarkaður
    • Gjaldeyrismál o.fl.
    • Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

    • Allir flokkar...

Samskipti

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið - Skuggasundi 3 - 150 Reykjavík (Sjá kort)
Sími 545 8800 - Bréfasími 511 1161 - Kt.: 700269-7369 - Netfang: postur@evr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna - Ritstjórn

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica