Úrskurðir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa
Úrskurður í máli 4/2005
I. Málsmeðferð
Nefndin tók við beiðni þann 11. ágúst 2005 frá X, sem hér eftir nefnist álitsbeiðandi, vegna ágreinings við Y ehf., hér eftir nefnt gagnaðili, en forsvarsmaður þess fyrirtækis er Z húsasmíðameistari. Í kjölfarið sendi nefndin erindið til gagnaðila til umsagnar og barst svar frá honum þann 18. október sl. Álitsbeiðandi kom svo með frekari athugasemdir vegna svars gagnaðila með bréfi mótteknu þann 3. desember sl.
Með kvörtun álitsbeiðanda fylgja ýmis fylgigögn. Eru þau, ásamt ofangreindum bréfaskriftum aðila, lögð til grundvallar úrskurði þessum.
II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Álitsbeiðandi fékk tilboð frá gagnaðila í trésmíðavinnu við hús að ............. í Reykjavík. Fólst verkið í meginatriðum í smíði, uppsetningu og frágangi á tröppum í garði og við inngang hússins. Álitsbeiðandi kveður tilboð gagnaðila hafa verið að fjárhæð 729.847 að VSK meðtöldum. Álitsbeiðandi kveðst hafa tekið tilboði þessu og var verkið unnið í júní mánuði 2005. Gagnaðili krafði álitsbeiðanda um kr. 930.822. Álitsbeiðandi telur að með þessu víki gagnaðili frá tilboði sínu og honum sé óheimilt að krefjast hærri fjárhæðar en í tilboði hans greinir.
Gagnaðili færði í bréfi sínu til nefndarinnar fram þau rök fyrir hækkun reiknings frá þeirri greiðslu sem upphaflega var ráðgerð fyrir verkið að komið hafi í ljós að smíða hafi þurft fleiri þrep í báðar tröppurnar en ráð var fyrir gert, auk þess sem reynst hafi nauðsynlegt að bæta við timbursúlu. Þá hafi ekki verið gert ráð fyrir niðurrifi á tröppum eða jöfnun jarðvegs og hleðslu veggjar undir tröppum.
Álitsbeiðandi gerir kröfu um að viðurkennt verði að gagnaðila sé skylt að halda sig við tilboð sitt í umrætt verk að fjárhæð kr. 729.847.
III. Forsendur
Samkvæmt ákvæði 2. tl. 1.mgr. 1. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup eiga viðskipti þau er hér er fjallað um undir lögin. Koma einkum til skoðunar ákvæði VII. kafla laganna er fjalla um endurgjald fyrir veitta þjónustu. Í 29. gr. laganna segir:
Jafnframt segir í 30. gr. þá aðstöðu þegar verk verður dýrara en upphaflega var ætlað:
Í skýringartexta við greinina segir m.a.: ” Sérstakar aðstæður geta komið upp sem seljandi þjónustu gat ekki séð fyrir og getur hann þá borið fyrir sig að um brostnar forsendur sé að ræða fyrir þeim verðupplýsingum sem hann gaf. Í slíkum tilvikum ber seljanda þjónustu viðbótargreiðsla enda tilkynni hann neytanda án tafar um hækkun á verði þjónustunnar.
Við mat á því hvað seljandi þjónustu mátti sjá fyrir skal miða við til hvers seljendur í viðkomandi þjónustugrein hefðu yfirleitt tekið tillit áður en samningur var gerður.”
Að mati kærunefndar verður að líta svo á að gagnaðili hafi gefið álitsbeiðanda bindandi tilboð í trésmíðavinnu þá sem fyrr greinir. Nefndin lítur svo á að á grundvelli þessa tilboðs hafi komist á samningur milli aðila um að verkið yrði unnið og að greiddar yrðu 729.847 kr. fyrir. Ekkert er komið fram í málinu sem bendir til þess að sérstakar aðstæður hafi verið uppi eða að atvik hafi komið til eftir tilboðsgerðina sem gagnaðili hefði ekki getað séð fyrir þegar tilboðið var sett fram. Kærunefnd skilur 3. tl. bréfs gagnaðila frá 18.10.2005 svo að við nánari athugun hafi komið í ljós að þrepin í tröppunum hafi orðið fleiri en gert hafi verið ráð fyrir í tilboði. Þetta er mjög skýrt dæmi um atriði sem hægt er að ganga úr skugga um við undirbúning tilboðsgerðar og húsasmíðameistari með full réttindi getur ekki borið fyrir sig. Hafi gagnaðila orðið á við tilboðsgerðina ber hann sjálfur hallann af þeim mistökum. Kærunefnd bendir einnig á að ekkert bendir til þess að gagnaðili hafi upplýst álitsbeiðanda um að útlit væri fyrir að hann væri tilneyddur að krefjast viðbótargreiðslna. Slík tilkynning er skilyrði þess að hægt sé að víkja frá tilboði í tiltekið verk. Við uppgjör ber að taka tillit til greiðslna sem álitsbeiðandi hefur þegar innt af hendi.
Niðurstaða
Álitsbeiðanda ber að greiða gagnaðila samtals kr. 729.847 vegna vinnu við smíði, uppsetningu og frágang á tröppum í garði og við inngang hússins að ......................... í Reykjavík.
Reykjavík, 8. febrúar 2006
